Umræðan/Facebook: Þorvaldur Gylfason prófessor skrifaði:
Sótti fínan og fjölmennan fund fulltrúaráðs Evrópuhreyfingarinnar, sem býr sig nú undir væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um næsta skref í málinu. Ég hafði þrennt að segja efnislega:
1. Syngjum okkur og dönsum til sigurs líkt og við gerðum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um nýju stjórnarskrána 2012 (meðan allir stjórnmálaflokkarnir fóru undan í flæmingi). Gleðin hefur jafnan vinninginn.
2. Afhjúpum ólígarkana sem berjast gegn inngöngu í ESB af því að þeir geta ekki vafið Brussel um fingur sér eins og þeir rúlla Alþingi upp hér heima. Segjum við þá: Gerið hreint fyrir ykkar dyrum í Namibíu og opnið reikningana ykkar í skattaskjólum og þá skulum við tala saman.
3. Hætt er við að vanræksla Alþingis í stjórnarskrármálinu standi EBS-málinu fyrir þrifum. Margir kjósendur munu trúlega sitja heima af því að þjóðaratkvæðið 2012 var að engu haft, auk þess sem samningsstaða Íslands gagnvart ESB væri mun sterkari ef ákvæði nýju stjórnarskrárinnar um auðlindir í þjóðareigu hefði hlotið lögfestingu. Þá stóð einn fundarmanna upp og sagðist eiga marga vini sem hættu að hlusta þegar minnzt væri á nýju stjórnarskrána. Að hætta að hlusta heitir einnig að berja höfðinu við steininn.