- Advertisement -

Að gefnu tilefni

Birgir Dýrfjörð skrifaði:

Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann,
þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann,
en láttu það svona í veðrinu vaka,
þú vitir, að hann hafi unnið til saka
.

og gakktu nú svona frá manni til manns,
uns mannorð er drepið og virðingin hans,
og hann er í lyginnar helgreipar seldur,
og hrakinn og vinlaus í ógæfu felldur.

Höf. Páll J. Árdal. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Enn og aftur er Gunnar Smári orðinn skotskífa illkvitni og öfundar  á netinu.

Gunnar Smári er um margt aðdáunarverður maður, afar fróður upplýstur og fjölhæfur.

Gegnum stækkunargler öfundarinnar…

Á sama tíma og við blasir uppgjöf margra hreyfinga og stjórnmálaflokka til að ná athygli almennings, þá birtist Gunnar Smári með viljan og vitið eitt að vopni og opnar metnaðarfulla sjónvarpsstöð  Samstöðin.  Hún er á rás 5 og opin allan sólarhringinn án endurgjalds,

Árið 1986 rak Alþýðuflokkurinn útvarpsstöð, það var fyrsta frjálsa útvarpsstöðin eftir afnám á einkarétti RUV. 

Kratana langaði sannarlega að halda stöðinni lifandi en treystu sér ekki til þess og ekki heldur.  að halda Alþýðublaðinu á lífi.  Framsókn gafst upp með flokksblaðið sitt og Tíminn hvarf.

Alþýðubandalagið gugnaði á að gefa út Þjóðviljann og hann hvarf.

Á bak við alla þessa fjölmiðla voru stjórnmálaflokkar með þúsundir stuðningsmanna.

Það dugði þó ekki til, allir gáfust þeir upp og hættu, með langa skuldahala.

Afrek Gunnars Smára

Svo gerist það ótúlega afrek að einstaklingur með viljan og vitið eitt að vopni opnar sjónvarp og útvarp og vefsíðu sem eru öllum opnar allan sólarhringinn án endurgjalds.

Þar býðst öllum metnaðarfull, menningarleg og fræðandi og eftirsótt dagskrá.

Það er vel þekkt að þegar einstaklingur hefur sig hátt yfir þúfnakolla meðalmennskunnar þá þjappar öfundarfólk sér saman að bera á hann sakir. Styrkur þess fólks er sameiginleg öfundin.

Gegnum stækkunargler öfundarinnar eru svo birtar neikvæðar sögur undir hylmingu sannleika.

          Höfundur er félagi í Samfylkingunni. 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: