
Umræðan/Facebook: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar skrifaði:
„Þetta er svo fyndin umræða – tragikómísk raunar. Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý og allir saman á kaffistofunni að tala um strákana okkar. Og menn bara alltaf að hliðra til hvort sem er – menn geta mögulega bara horft á leikinn í vinnunni – þurfa ekkert að hringja sig inn þykjustu-veika. Allir vinir – nema náttúrlega verkafólkið – sem þarf að skila vottorði ef að það er einn dag veikt – sem er ekki með neina uppsagnarvernd og er einfaldlega rekið ef það heldur að hlutirnir eiga vera notalegir. Verkafólkið sem SA-prinsarnir vilja láta skila inn vottorði ef það leyfir sér að vera veikt einn eða tvo daga – verkafólkið sem SA neitar að veita örlítið betri uppsagnarvernd.
En við erum samt öll saman í liði – áfram Ísland – ekki þú samt, ræstingakona; ekki taka pásu, ekki fara á klóið, ekki kíkja í símann, og guð hjálpi þér, ekki vera veik og halda að þú þurfir ekki að skila inn vottorði. Við erum ekki að tala um þig þegar við segjum að það sé gaman að kjafta á kaffistofunni um hver sé bestur í boltanum, það hlýtur að vera augljóst, lol.“