Umræðan: Birgir Dýrfjörð rafviki skrifaði:
Formaður Sjálfstæðiflokksins á verulega bágt og er í viðvarandi panikk-ástandi. Samkvæmt könnunum er flokkurinn að hrynja í höndum hennar og hún kann engin ráð.
Flokkurinn er í tætlum „Í góðsemi vegur þar hver annan“.
Ég man vel hvernig okkur leið í Alþýðuflokknum þegar hann mældist á botninum, með pylsnerfylgi, það var sárt og erfitt. Ég man þó enn betur hvernig við náðum vopnum okkar og fimmfölduðum Pylsnerfylgið og vel það.
Ég er því ekki að grínast þegar ég játa að ég finn fyrir samúð með formanni Sjálfstæðisflokksins sem einstaklingi. Það má lengi verjast þeim sem koma framan að manni.
En það stenst engin til lengdar þegar þeir sem að baki manns standa eru fullir af svikráðum.
Þá hrynur sjálstraustið og í stað þess kemur örvænting. (panikk)