Stjórnmál:
Magnús Guðbergsson skrifaði:
„Það er eitthvað verulega skakkt við kerfi þar sem bátur getur haft varanlega aflahlutdeild, fengið úthlutað aflamark ár hvert og síðan gengið inn í strandveiðikerfið án þess að strandveiðiaflinn gangi fyrst á þær heimildir sem báturinn hefur þegar fengið.
Strandveiðar eiga að vera valkostur, ekki bónus ofan á kvótakerfið.
Vilji bátur með aflahlutdeild fara á strandveiðar er eðlileg regla einföld. Hann má velja strandveiðikerfið og stunda veiðar samkvæmt nákvæmlega sömu reglum og aðrir strandveiðibátar, en aflinn gengur fyrst á þær aflaheimildir sem þegar hafa verið úthlutaðar til bátsins. Þegar þær eru fullnýttar tekur strandveiðikerfið við samkvæmt þeim reglum sem þar gilda.
Hitt stenst illa sanngirnissjónarmið. (Samkeppnissjónarmið) útgerð geti geymt eigin aflaheimildir eða leigt þær frá sér og gengið síðan inn í takmarkað strandveiðikerfi og veitt úr þeim heimildum sem ætlaðar eru því kerfi.
Við megum ekki gleyma hvaðan allar þessar heimildir koma. Á hverju fiskveiðiári er ákveðin heildarúthlutun á grundvelli þess aflamagns sem stjórnvöld heimila með hliðsjón af vísindalegri ráðgjöf. Úr þeirri sameiginlegu auðlind fær útgerð nýtingarrétt sinn.
Hvers vegna á sá sem þegar hefur fengið sinn hlut úr heildarúthlutuninni að geta leigt þann rétt frá sér á nær 600.000 kr tonnið eða ráðstafað honum annars staðar og síðan gengið inn í strandveiðikerfið og sækja þar viðbótarheimildir?
Strandveiðimaðurinn fær ekki sambærilegan rétt í hina áttina. Hann getur ekki geymt 48 strandveiðidaga, leigt þá frá sér og síðan gengið inn í aflamarkskerfið og fengið aflaheimildir þar án endurgjalds.
Þarna verður jafnræðið að byrja.
Velji bátur strandveiðar eiga þær aflaheimildir sem honum hefur þegar verið úthlutað að ganga fyrst undir aflann. Þegar þær eru fullnýttar tekur strandveiðirétturinn við.
Þá sitja allir við sama borð.
Strandveiðar eiga ekki að vera frír aukapottur fyrir þá sem þegar hafa fengið úthlutaðan nýtingarrétt úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.
Í raun á að koma til 100% veiðiskylda áður en strandveiðileyfi er veitt á viðkomandi bát
Eða þú velur að vera með þínar heimildir undir sömu takmörkunum og aðrir sem velja strandveiðileyfi nema að þú nýtir þínar utgefnu heimildir fyrst og færð svo að nýta sameiginlegar heimildir á strandveiðum.
Jafnframt á að útiloka báta sem selja varanlega aflahlutdeild frá sér (útiloka kinaleið) frá kerfinu yfir tvö fiskveiðiáramót. Nema að sama útgerð sé að endurnýja bát og þá þurfa allar þær heimildir áfram að vera til staðar á bátnum áfram sem fyrir vóru.
Hvort sem þeir hafa keypt eða fengið úthlutað frítt.
Þá skiptir það engu máli.
Rétturinn til veiðanna er aðeins eitt ár í senn og það eru aflaheimildir hvers árs fyrir sig.
Fyrst þínar heimildir á strandveiðum í þorski. Eða þú velur að klára þínar heimildir 100% í þorski. Síðan strandveiðar. Ekki bæði í einu á kostnað þeirra sem hafa ekkert annað kerfi að ganga í.“