- Advertisement -

Áhugaleysi ráðherrans á smábátaútgerð

Umræðan: Vigfús Ásbjörnsson á Höfn í Hornafirði skrifaði:

Voru ekki örugglega hrein stjórnarskipti hér í landinu fyrir nokkuð mörgum mánuðum? Kannski voru þau ekki svo hrein svona þegar öllu er á botninn hvolft.

„Hvenær heyrðuð þið sjávarútvegsráðherra okkar Hanna Katrin Friðriksson nefna strandveiðar síðast á nafn? Eða þá nokkura aðra smábátaútgerð!

Ég man ekki eftir að hún hafi nefnt strandveiðar að nafni síðan síðasta sumar þá varla að hún nennti að tala um þær og hvað þá gera eitthvað fyrir þær. Strandveiðar sem er jú einhverjar umhverfisvænustu veiðar sem hægt er að stunda og eina litla aðgengið sem þjóðin hefur í nýtingu á sinna eigin fiskveiðiauðlind. Strandveiðar eru jú það kerfi sem meira en 70% þjóðarinnar vill efla innan fiskveiðistjórnunarkerfana okkar. Hanna Katrín lætur bara eins og henni komi strandveiðar ekki við þó svo utanumhald um þær hafi færst á milli ráðuneyta á einni nóttu síðasta sumar… Strandveiðar eru jú sjávarútvegur síðast þegar ég vissi og áhugaleysi sjávarútvegsráðherrans okkar á smábátaútgerð og strandveiðum virðist því vera algjört. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Mann sem kemur beint úr röðum SFS.

Helstu verk hennar hafa verið að skipa fyrrverandi forstjóra Granda sem forstjóra Hafrannsóknarstofnunar… Mann sem kemur beint úr röðum SFS eins og skrifstofustjórinn hennar hann Kolbeinn Árnason, fyrrum framkvæmdastjóri SFS, sem er búinn að vera ansi lengi til ráðabruggs í ráðaneytinu.

Núna er síðasta verk hennar að reyna að koma á kvótakerfi í lagareldi eins og það sé nauðsynlegt fyrir almannahag að skapa hér annað auðlindaskortkerfi sem hægt verður að veðsetja og framselja að vild og erfist svo til útvalinna barna komandi kynslóða. Jafnvel barna Norðmanna…. Svo kvartar hún fyrir framan alþjóð yfir afskiptum erlendra aðila að kvótafrumvarpinu sínu en reynir svo að sannfæra þjóðina um að henni sé best borgið í ESB með en meiri erlendum afskiptum. Hérna fer ekki saman hljóð og mynd. Það er örugglega hægt að skapa góða umgjörð um lagareldi án þess að búa til kvótakerfi handa örfáum aðilum. 

Voru ekki örugglega hrein stjórnarskipti hér í landinu fyrir nokkuð mörgum mánuðum? Kannski voru þau ekki svo hrein svona þegar öllu er á botninn hvolft og Viðreisn sem er vel sponseraður flokkur af vissum aðilum af stórútgerðinni er farin að sýna á spilin…“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: