- Advertisement -

Ákall til alls íþróttafólks

Ólafur Ólafsson skrifaði:

Sem FH-ingur og Haukamaður, og m.a. á sínum tíma fyrirliði í 5., 4. og 3. flokki FH í fótbolta (í bland við fleiri), skora ég á bæði félögin mín að krefjast þess af KÍ, HÍ, KKÍ og ÍSÍ að þau gefi út yfirlýsingu og krefjist þess að Ísrael verði vísað úr öllum alþjóðlegum keppnum vegna þeirra hryllilegu stríðsglæpa, glæpa gegn mannkyni og þjóðarmorðs sem ríkið er að fremja á Palestínubúum! Það á ekki að vera neitt pláss fyrir glæpa- og hryðjuverkaríki eins og Ísrael er orðið í alþjóðlegum íþróttakeppnum! Íþróttir og stríðsglæpir fara augljóslega ekki saman. Og það á ekki að vera spurning lengur hvort svo er eða ekki.

Íþróttahreyfingunni getur ekki skýlt sér deginum lengur á bakvið það að vilja vera hlutlaus. Í fyrsta lagi vitum við að slíkt hlutleysi er ekki til og engan veginn þegar um er að ræða þjóðarmorð, sem nú hefur verið lýst yfir að er þjóðarmorð, af rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna.

Líka langar mig með þessum pósti að senda út ákall til alls íþróttafólks, og við erum mörg, um að taka mynd af sér í íþróttatreyjunni sinni, og skora á sitt félag að skora á landssamböndin og ÍSÍ að krefjast brottvísunar Ísrael úr öllum alþjóðlegum íþróttakeppnum! Líka er öllum frjálst að deila þessum pósti. Lifi frjáls Palestína!

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þjóð gegn þjóðarmorði #íþróttafólkgegnþjóðarmorði #engaríþróttiríþjóðarmorði


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: