Besta tólið til þess er að tryggja að afkoma ríkissjóðs sé réttu megin við núllið.
Kristrún Frostadóttir.
Alþingi: Kristrún Frostadóttir svaraði Þórarni Inga Péturssyni á Alþingi fyrr í dag:
„Sama hvort við förum í aðildarviðræður eða ekki, sama hvort við göngum inn í Evrópusambandið eða ekki, þá skiptir máli að hafa styrka stjórn á efnahaginum. Það er ekki töfralausn að ganga inn í Evrópusambandið. Það virkar ekki þannig. Efnahagurinn í Evrópu og innan Evrópusambandslanda er alls konar. Hann er alls konar, enda er þetta ekki útgangspunktur þess að spyrja þjóðina. Það eru aðrir þættir sem eru undir þannig að þetta breytir engu fyrir verkefni ríkisstjórnarinnar hverju sinni hvort við förum í þessar aðildarviðræður eða ekki. Það er enginn að vonast eftir jái af því að þá þurfum við ekki að gera neitt annað eða neii vegna þess að það muni redda einhverju öðru. Þetta eru viðvarandi verkefni,“ sagði Kristrún. Og hélt áfram:
„Það sem snýr að aðgerðum hlýtur auðvitað fyrst og fremst að snúa að stóru spurningunni, að aðgerðir ríkisins séu ekki verðbólguhvetjandi yfir lengri tíma. Ríkið getur ekki breytt einstaka verðbólgumælingum, Seðlabankinn er með sín tól til þess en ríkið getur haft áhrif á ákveðna samsetningu í hagkerfinu. Besta tólið til þess er að tryggja að afkoma ríkissjóðs sé réttu megin við núllið. Það er það sem okkar aðgerðir hafa miðað að, það eru okkar aðgerðir sem við erum að vinna að. Við erum að vinna að fjármálaáætlun núna. Það er meiri áskorun að gera það í núverandi umhverfi. Það er meiri áskorun að gera það í umhverfi þar sem, já, það mælist 5% atvinnuleysi. En það sem er áhugavert og er áhyggjuefni er að það er fyrst og fremst út af því að það er 10% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara þar sem var hvað mest fólksfjölgun á tímabili síðustu ríkisstjórnar. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að þessi ríkisstjórn er líka að vinna að atvinnustefnu, velta fyrir sér í hvaða störf fólk er að fara, hver framleiðni þeirra starfa er. Erum við fyrst og fremst að keyra hagvöxt áfram á fólksfjölgun sem á það til síðan að skapa mögulega þær aðstæður að þegar eitthvað gefur eftir þá lendi fólk á atvinnuleysisskrá. Aðildarviðræður er einn lítill punktur í stefnu þessarar ríkisstjórnar.“
Kristrún lauk ræðu sinni með þessum orðum:
„Við erum að vinna í langtímalausnum. Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður er einn lítill punktur í stefnu þessarar ríkisstjórnar. Þess vegna m.a. var þetta mál afgreitt á hundraðasta ríkisstjórnarfundi þessarar ríkisstjórnar, ekki þeim fyrsta.