- Advertisement -

„Sjáið þið ekki friðinn?“

Ég sé engan frið. Ég sé ömurlegt stríð sem m.a. við berum ábyrgð á vegna aðgerðaleysis. Gaza og Vesturbakkinn eru Víetnam okkar kynslóðar, á ábyrgð okkar kynslóðar.“

Sigmundur Ernir Rúnarsson.

Alþingi: Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skaut föstum skotum að Jens Garðari Helgasyni, varaformanni Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag. Ræða Sigmundar fer hér á eftir:

Ég sé blóðugar þjóðernishreinsanir.

„Sjáið þið ekki friðinn? var sagt í þessari pontu á dögunum og bent á Gaza. Er ekki hægt að senda flóttafólkið aftur? Nei, ég sé engan frið. Ég sé blóðugar þjóðernishreinsanir. Staðfest er að 75.000 Palestínumenn hafa verið drepnir á Gaza. 180.000 hafa verið særðir. Talan er líklega á þriðja hundrað þúsund þegar öll kurl eru komin til grafar. Á þriðja hundrað þúsund, þriðjungur börn. Sjáið þið ekki friðinn? Það er búið að rústa 90% af húsnæði á Gaza og verkfræðiher undir stjórn Ísraelshers ætlar að fletja restina út og koma fáum hræðum fyrir innan girðingar á Rafah, sem verða á endanum útrýmingarbúðir. Sjáið þið ekki friðinn? Er ástandið betra á Vesturbakkanum? Aldeilis ekki. Það er jafnvel miklu verra. 1.109 Palestínumenn hafa verið drepnir þar af Ísraelsher á síðustu tveimur árum, 11.000 særðir, 21.000 handteknir og eru í fangelsum. Sjáið þið ekki friðinn?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ólívuakrarnir sem nema þúsundum hektara hafa verið upprættir og eyðilagðir, tré sem tekur hundruð ára að vaxa. Lífsviðurværi þessa fólks er tekið frá því, það kemst ekki á markaði, það kemst ekki á akrana sína og 35 þorp á þessum tíma hafa verið þurrkuð út á Vesturbakkanum í skjóli þess sem er að gerast á Gaza. Sjáið þið ekki friðinn, sjáið þið ekki öryggið? Eigum ekki að gera eins og við gerðum 1938 þegar við sendum flóttamenn frá Þýskalandi, gyðinga, aftur til Þýskalands í klær nasistanna? Eigum við að gera það aftur?

Ég sé engan frið. Ég sé ömurlegt stríð sem m.a. við berum ábyrgð á vegna aðgerðaleysis. Gaza og Vesturbakkinn eru Víetnam okkar kynslóðar, á ábyrgð okkar kynslóðar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: