…breytti afhendingarhátíð heiðursverðlauna miðstöðvarinnar í ósmekklega og yfirborðskennda hyllingarsamkomu um sig sjálfan.
Óðinn Jónsson.
Facebook:
Óðinn Jónsson skrifað eftirfarandi:
„Kóngurinn í Hvíta húsinu tók yfir stjórn á Kennedy Center í Washington D.C. fyrr á árinu og breytti afhendingarhátíð heiðursverðlauna miðstöðvarinnar í ósmekklega og yfirborðskennda hyllingarsamkomu um sig sjálfan. Það var við hæfi að hljómsveitin Kiss fékk heiðursverðlaun. Allur þokki, raunverulegir hæfileikar og sjarmi á bak og burt. Við munum þegar Aretha Franklin spilaði á píanó og söng á sviðinu íklædd pels lagið (You Make Me Feel Like) A Natural Woman til heiðurs höfundinum Carole King og Obama vöknaði um augu af geðshræringu. Þá var tilfinningarússibaninn ekki minni þegar þrír eftirlifandi meðlimir Led Zeppelin hlýddu stoltir og hrærðir á frábæra túlkun á lagi þeirra Stairway to Heaven.

Fleiri minnistæð atriði má nefna, eins og þegar Beyoncé hyllti Tinu Turner með flutningi á laginu Proud Mary og auðvitað þegar James Taylor og Mavis Staples, ásamt kór, fluttu Let it Be fyrir heiðursverðlaunahafann Paul McCartney. Nei, þessi gullöld er liðin. Almennilegir listamenn vilja hvergi koma nærri kónginum. Fleiri mættu fylgja því ráði. Það er auðvitað ekki búandi í ofbeldissambandi. Enginn á að þola slíkt – ekki venjulegt fólk eða fyrirtæki, þjóðir eða ríki. – Sjáið þessa mynd úr Kennedy Center sem Carlos Barria tók fyrir Reuters. Segir meira en þúsund orð.“