- Advertisement -

Ár liðið frá komu Skráargatsins

Eitt ár er nú liðið frá því að Skráargatið var innleitt á Íslandi. Skráargatið er opinbert samnorrænt merki sem á að aðstoða neytendur við að velja hollari matvörur. Matvælastofnun og Embætti landlæknis standa sameiginlega að Skráargatinu hér á landi.

Á vef Landlæknis kemur fram að slagorð Skráargatsins sé „Einfalt að velja hollara“. Í því felst einmitt grundvallarmarkmið merkisins, þ.e. að einfalda neytendum val á hollari matvöru. Ef varan ber merkið þýðir það að hún uppfyllir ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna sem skilgreind eru fyrir viðkomandi matvælaflokk. Hún inniheldur þá minni og hollari fitu, minni sykur, minna salt og meira af trefjum og heilkorni en aðrar vörur í sama flokki sem ekki uppfylla skilyrðin til að bera Skráargatið.

Á þessu fyrsta ári frá innleiðingu Skráargatsins hefur mátt sjá að matvælafyrirtæki nýta sér merkið í síauknum mæli til þess að beina athygli neytenda að vörum sínum og þróa hollari vörur í samræmi við markmið og skilyrði Skráargatsins.

Þetta er mjög æskileg þróun því að hún stuðlar að auknu úrvali af hollum matvælum á matvörumarkaðinum. Þessi aukning skráargatsmerktra vara í verslunum sýnir að neytendur hafa tekið vel á móti Skráargatinu.

Þar sem Skráargatið er opinbert merki er mikilvægt að fylgjast vel með þeim vörum sem nota merkið. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga fylgjast sérstaklega með því að farið sé eftir reglum um notkun Skráargatsins og geta neytendur á Íslandi treyst því að svo sé.

Við eigum enn langt í land til að geta borið okkur saman við samstarfsþjóðirnar um Skráargatið, Svíþjóð, Noreg og Danmörku, en þróun Skráargatsins hér á landi sýnir að við erum á réttri leið og því ber að sjálfsögðu að fagna.

Nú er „einfalt að velja hollara“ – kynntu þér málið á skraargat.is.

Sjá frétt á vef Landlæknis.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: