- Advertisement -

Arion banki í bulli

Skiljanlega er áhuginn á svona rusli takmarkaður og því hefur verðið ítrekað verið fært niður í bókum bankans.

Tómas Guðbjartsson skrifar:

Það er eins og Arion banka sé fyrirmunað að taka skynsamlegar ákvarðanir þegar kemur að kísilverinu í Helguvík. Nú hefur bankinn líst því yfir að hann vilji „blása lífi“ í framkvæmdina og stækka verksmiðjuna umtalsvert. Þetta er gjörsamlega óskiljanleg ákvörðun og siðferðislega röng. 

Frá fyrstu skólfstungu að United Silicon. Magnús Garðarsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd: vf.is
Þú gætir haft áhuga á þessum

Allir þekkja hörmungarsögu United Silicon, verksmiðjuhróaldi sem var plantað niður í Helguvík, nánast í íbúðabyggð. Ekki nóg með að verksmiðjan væri sérlega ljót heldur gerði útblásturinn fjölda fólks, þar með talin börn, í Reykjanesbæ alvarlega veikt. Þetta reyndist svikamylla þar sem eftirlit brást algjörlega, eitthvað sem fjármögnunaraðilinn Arion banki getur ekki firrt sig ábyrgð á og hefur kostað bankann, lífeyrissjóði og kúnna hans tugi milljarða. Sem betur fer var verksmiðjunni lokað í september 2017 en síðan hefur bankinn reynt að selja óskapnaðinn úr landi. 

Skiljanlega er áhuginn á svona rusli takmarkaður og því hefur verðið ítrekað verið fært niður í bókum bankans. En nú ætlar bankinn, sem fjármagnað hefur framkvæmdina að fullu, greinilega að nýta sér bágborið atvinnu ástandið í Reykjanesbæ vegna Covid-19 og ekki bara endurræsa heldur margfalda stærð verksmiðjunnar. Stækkuð mun verksmiðjan auka kolefnisspor Íslands um 10%! Ætla íbúar Reykjanesbæjar og Íslendingar að sætta sig við svona vinnubrögð? 

Arion banki kann greinilega ekki að skammast sín og gerir greinilega ráð fyrir að fólk og fyrirtæki haldi áfram viðskiptum við hann – óháð fjárfestingarstefnu. Sem ég held að sé misskilningur árið 2020 – enda gullfiskaminnið ekki algjört. Á tyllidögum þykist Arionbanki nefnilega vera „umhverfisvænn banki“ og á heimasíðu hans má lesa eftirfarandi: 

Arion banki kann greinilega ekki að skammast sín og gerir greinilega ráð fyrir að fólk og fyrirtæki haldi áfram viðskiptum við hann – óháð fjárfestingarstefnu.

„Með því að leita leiða til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið og minnka losun gróðurhúsalofttegunda styður Arion banki við þrettánda Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir í loftslagsmálum (e. climate action).

Einnig styður bankinn með aðgerðum sínum viðmið sjö til níu sem snúa að umhverfismálum í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja, UN Global Compact, en Arion banki hefur verið aðili að sáttmálanum frá árslokum 2016.“ 

Þessi orð eru greinilega hjóm og gjörsamlega úr takti við við slysið í Helguvík – sem virðist ætla að sigla í stórslys. 

Í þessu sambandi er vert að hafa hörmungarsögu kísilversins á Bakka í huga – en sú verksmiðja hefur verið í öndunarvél og á gjörgæslu síðastliðin misseri. 

Á Bakka er ekkert bóluefni í augsýn við kísiliðjuvírusnum frekar en í Helguvík – og fáránlegt að fjölga verksmiðjum á gjörgæslu. Gjörgæslupláss á að nota í annað – og heilsa fólks og umhverfi á alltaf að vera í forgangi.

Höfundur er hjartaskurðlæknir, prófessor og náttúrverndarsinni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: