- Advertisement -

Ástæður árangurslausrar baráttu Tyrklands í 37 ár

„Ekki er annað að sjá, en að ýmsir valdamenn, Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi og aðrir forsvarsmenn sérhagsmunagæzlunnar og þá um leið klíkuskaparins og spillingarinnar í landinu…“

Ole Anton Bieltvedt.

Ole Anton Bieltvedt skrifar:

Stjórnmál Það regluverk, sem frá ESB kemur og byggir á grunnstefnu og grunngildum ríkjasambandsins, gengur út á það, að tryggja (1) lýðræðislegar leikreglur og réttaröryggi (2) harða viðspyrnu við klíkuskap og spillingu (3) jafnræði milli þjóðfélagshópa (4) sérstaka vernd minnihlutahópa (5) neytendavernd og matvælaöryggi (6) heilsuvernd (7) velferð og öryggi manna – heima fyrir, á ferðalögum og á vinnustað – (8) dýra-, náttúru- og umhverfisvernd; við eigum bara eina jörð (9) réttindi almennings gagnvart alþjóðlegum stórfyrirtækjum, svo sem flugfélögum, bönkum og símafélögum (10) eftirlit með því, að alþjóðlegu risafyrirtækin borgi sanngjarna skatta.

Í þessaru stefnumörkun og regluverki eru semsé harðar kröfur settar fram, og verða þau þjóðríki, sem vilja verða aðildarríki, að innleiða í sín lög ákvæði, sem ganga skýrt í þessa átt, og svo, eftir aðild, fylgja þeim stíft og með sannfærandi hætti eftir.

nú síðast með kúgunartilraun í sambandi við inngöngu Svíþjóðar í NATO – auðvitað allt annað mál.

Það eru í raun öll ríki álfunnar, sem sækja það fast og með öllum ráðum, að komast inn í ESB, nema þá Bretland, sem gekk úr ESB á grundvelli blekkinga, ósanninda og rangfærslna þeirra íhalds- og afturhaldsafla, sem fyrir útgöngu stóðu, og svo Ísland, trúlega mest af ótta við regluverkið gegn sérhagsmunabrölti, klíkuskap og spillingu.

Norðmenn, sem hafa verið tvístigandi vegna ríkra þjóðernistilfinninga, sérstaklega landsbyggðarmanna, virðast nú hafa tekið af skarið og ætla að stefna á aðildarumsókn. Ný umsókn Noregs um aðild virðist ætla að verða stóra kosningamál Norðmanna 2025.

Í ESB-ríkjasambandinu eru nú 27 evrópsk þjóðríki. Tyrklandi reyndi fyrst að komast inn 1987, en þá hét bandalagið enn EEC (European Economic Community), en því var breytt 1993 í EU (European Union).

Tyrkland hefur því í 37 ár verið að reyna – með flestum eða öllum ráðum – nú síðast með kúgunartilraun í sambandi við inngöngu Svíþjóðar í NATO – auðvitað allt annað mál, sýnir örvæntingu Erdogans –  að komast inn í sambandið, til að geta notið þeirra fríðinda og tryggt sér þá velferð, þá hagsmuni og það öryggi, sem sambandið býður upp á.

Allar tilraunir landsins hafa þó strandað á því, að landið, stjórnendur þess, nú síðustu áratugina Recep Erdogan, hafa hunzað flestar grunnreglur ESB um lýðræði, mannréttindi, réttaröryggi og baráttuna gegn spillingu.

Í raun gildir það sama um öll hin ríkin 9, sem hafa verið að reyna að komast inn í ESB, sum þeirra líka í meira en áratug. Umsóknir hafa strandað á því, að þau uppfylla ekki kröfurnar 10, sem ég listaði upp hér í byrjun, en ESB hvikar ekki frá neinni þeirra, einkum og alls ekki 1, 2 og 3.

Ríkin 9, sem eru í biðröðinni, og eru nú í samráði við ESB að reyna að bæta sitt lýðræði, siðferði, jafnrétti og mannréttindi borgaranna, eru: Albanía, Bosnía-Hersegóvina, Georgía, Kosovó, Moldavía, Norður Makedónía, Serbía, Svartfjallaland og Úkraína.

Sú viðurkenning virðist Úkraínumönnum afar mikilvæg og dýrmæt, en það er greinilega eitt grundgilda Úkraínumanna, að teljast til evrópskra þjóða, mannfræðilega og menningarlega.

Hvað Úkraínu varðar, þá hefur ESB samþykkt sérstaka meðferð fyrir þá, nokkurs konar flýtimeðferð, til að styrkja Úkraínumenn, bæði siðferðislega og efnahagslega, í baráttunni gegn Rússlandi Pútíns. Er þetta staðfesting Evrópu á því, að hún líti á Úkraínu sem „eina af okkur“; hluta af Evrópu. Sú viðurkenning virðist Úkraínumönnum afar mikilvæg og dýrmæt, en það er greinilega eitt grundgilda Úkraínumanna, að teljast til evrópskra þjóða, mannfræðilega og menningarlega.

Í raun er það umhugsunarefni, að, á sama tíma og nánast öll þau Evrópuríki, sem ekki eru í ESB, eru með ráð og dáð að reyna að komast í sambandið og fá Evruna sem gjaldmiðil, til að tryggja efnahag sinn og stöðuleika hans, lága vexti og aukna velferð, skuli Ísland – valdaelítan hér –  ekki einu sinni vilja skoða eða ræða málið.

kki er annað að sjá, en að ýmsir valdamenn, Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi og aðrir forsvarsmenn sérhagsmunagæzlunnar og þá um leið klíkuskaparins og spillingarinnar í landinu, nánast stirni upp, ef málið ber á góma.

Ekki er annað að sjá, en að ýmsir valdamenn, Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi og aðrir forsvarsmenn sérhagsmunagæzlunnar og þá um leið klíkuskaparins og spillingarinnar í landinu, nánast stirni upp, ef málið ber á góma, hvað þá, að þeir séu til í, að láta á það reyna, fyrst, hvort þjóðin vilji fara í nýja óskuldbindandi umsókn, eða framhaldsviðræður á grundvelli þeirrar umsóknar, sem var lögð inn 2009/2010, og, svo í framhaldinu, ef niðurstaða þjóðaratkvæðis verður á þann veg, nýjar samningaumleitanir, sem auðvitað væru líka opnar og án fyrirfram skuldbindinga.

Ótti ESB-andstæðinga við ESB-regulverkið eru eflaust margþættur, en efst stendur væntanlega það, að við inngöngu í ESB og upptöku Evru myndi sú sérhagsmunagæzla og það spillingar- og klíkuveldi, sem íslenzka krónan leyfir, falla.

Yrði erfitt fyrir valdaklíkuna, valdapótintáta Sjálfstæðismanna og Framsóknar, sem hafa skipt með sér kökunni – tryggt sér og sínum sérstöðu, hagsmuni og forgang, þar sem almenningur hefur mætt afgangi – eftir sleitulausa valdahandhöfn í allt að heilli öld, að missa spottana til að kippa í úr höndum sér.  


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: