- Advertisement -

Ásthildur er bæjarstjórefni Sjálfstæðismanna

Ásthildur Sturludóttir, núverandi bæjarstjóri Vesturbyggðar, er bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna og óháðra í komandi kosningum. Forseti bæjarstjórnarm, Friðbjörg Matthíasdóttir framkvæmdastjóri, leiðir listann.

Aðstandendur framboðsins segja að framboðið muni á næstu dögum bjóða íbúum Vesturbyggðar á stefnumót um framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið. Verður sú vinna nýtt við gerð stefnuskrár fyrir framboðið. Íbúar eru hvattir til að taka þátt í vinnunni.

Framboðslistinn er svona:

1. Friðbjörg Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri
2. Magnús Jónsson, skipstjóri
3. Ásgeir Sveinsson, bóndi
4. Nanna Á. Jónsdóttir, bóndi
5. Gísli Ægir Ágústsson, skipstjóri
6. Halldór Traustason, málarameistari
7. Ása Dóra Finnbogadóttir, umhverfisskipulagsfræðingur
8. Gunnar Héðinsson, vélstjóri
9. Jón BG Jónsson, læknir
10. Gerður Sveinsdóttir, viðskiptafræðingur
11. Hjörtur Sigurðsson, hafnarvörður
12. Jórunn Helgadóttir, húsfreyja
13. Víðir Hólm Guðbjartsson, bóndi
14. Guðmundur Sævar Guðjónsson, bílstjóri og húsasmíðameistari

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: