- Advertisement -

Bændur misnotaðir

Birgir Dýrfjörð skifaði:

Vanhugsuð samþykkt bændanna hefur nú þegar valdið reiði og heift og gremju og vakið áleitna refsilöngun gegn bændum landsins.

Í mörgum fjölskyldum er fólk sem er býr við þröngan kost og nær ekki endum saman. Oftast er ástæðan okurvextir og / eða há húsaleiga, sem réttlætt er með háum vöxtum.

Fjöldi þess fólks sem er að bogna undan vaxtabyrði álítur (með réttu eða röngu) að tenging við evruna geti létt af því vaxtaokrinu. Það vill því nýta rétt sinn að skoða þann möguleika.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Munum að vaxtaþrælarnir eru  líka skattgreiðendur…

Þá gerðist það ljóta. Upp reis hreyfing meðal bænda sem segir nei við því að fólk að nýti þann rétt. Bændur segja að von þess um möguleika á lækkun vaxta sé ekki þess virði að skoða hana.

Bændur hafa þannig lýst yfir að þeir vilja koma í veg fyrir að hægt sé skoða hvort í boði geti verið leiðir til að létta af fólki svívirðilegu vaxtaokrinu. Það er sjálfsagt að hver og einn myndi sér eigin skoðun og greiði atkvæði í samræmi við það.

En það er hættulegt ofbeldi þegar heil stétt tekur afstöðu gegn væntingum þess stóra hluta þjóðarinnar sem enn eru undirokaðir vaxtaþrælar fjármagnseigenda. Vanhugsuð samþykkt bændanna hefur nú þegar valdið reiði og heift og gremju og vakið áleitna refsilöngun gegn bændum landsins.

Allar starfsstéttir eru dýrmætar. Ég leyfi mér þó að halda fram að í gegnum tíðina eigi þjóðin tilveru sína og menningu mest að þakka sjómönnum og bændum og dugmiklum konum. Nú eru sjómenn vel launuð  stétt en bændur lepja dauðann úr skel. Þeir eru fátækasta stéttin þó þeir eigi skilið þakklæti og virðingu þjóðarinnar umfram margar aðrar stéttir.

Ég leyfi mér þvi að kynna þá tillögu að Bændasamtök Íslansds biðjist afsökunar og dragi til baka aðför bænda gegn vonum fólks um bætt lífskjör.  

Munum að vaxtaþrælarnir eru  líka skattgreiðendur og kjósendur. Munum að í þeim er mikið afl, sem allir ættu að forðast að espa gegn sér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: