- Advertisement -

Bjarni lestarstjóri

Elín Tryggvadóttir:

Þú ert sennilega að gefa í skyn að Landspítali sé bilaði vagninn en áttar þig ekki á því að það ert þú sem situr við stjórn í bilaða vagninum.

Elín Tryggvadóttir skrifaði Bjarna Benediktssyni bréf:

„Kæri Bjarni

Ég er búin að telja upp á tíu, tuttugu, þrjátíu og hundrað. Ég held samt að sama hversu hátt ég tel, fer með alla aukastafi pí, fái mér sobril eða fari í jóga, ég mun ekki ná úr mér reiðinni nema skila skömminni þangað sem hún á heima. Ég gerði þau mistök að lesa viðtal við Sjálfstæðismann í kosningabaráttu á ruv.is 6. ágúst.

Til Bjarna:

Það er nú samt frekar súrt að þú þykist vera alveg hissa núna í ágúst árið 2021 að heilbrigðiskerfi Íslendinga standi ekki undir álagi.

Vinna með fólk er nefnilega dálítið öðruvísi Bjarni.

„Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir óásættanlegt að heilbrigðiskerfið ráði ekki við fjórðu bylgju faraldursins, þrátt fyrir að flestir séu bólusettir. Aðgerðir síðustu mánaða til að efla kerfið virðist ekki hafa skilað tilætluðum árangri.“

Ég veit varla hvar ég á að byrja Bjarni.

Þú segir að það sé óásættanlegt að heilbrigðiskerfið ráði ekki við fjórðu bylgju faraldursins og talar um að aðgerðir síðustu mánaða virðist ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Það er gott að þú ert eitthvað að átta þig á því að heilbrigðiskerfið ráði ekki við verkefni sín. Dálítið seint reyndar en þetta virðist eitthvað vera að skila sér. Það er nú samt frekar súrt að þú þykist vera alveg hissa núna í ágúst árið 2021 að heilbrigðiskerfi Íslendinga standi ekki undir álagi. Við sem störfum á gólfinu erum búin að segja þér það margoft, þú hefur bara einhverra hluta vegna ekki verið að hlusta. Það eru reyndar nokkur ár síðan við byrjuðum að reyna að ná eyrum stjórnvalda með hinum ýmsu ráðum en þú hefur kannski verið upptekinn við eitthvað annað.

Þú afvegaleiðist reyndar aðeins í viðtali á vísi.is 6. ágúst og ferð að spá í því „hvað veldur því að við náum ekki meiri framleiðni í kerfinu þrátt fyrir að við séum að fjármagna kerfið betur og höfum verið að bæta mönnun“ en við getum fyrirgefið þennan misskilning því þú ert vanur að vinna með peninga en ekki fólk. Vinna með fólk er nefnilega dálítið öðruvísi Bjarni. Ávöxtunin þegar starfað er við að bjarga mannslífum skilar sér ekki í beinhörðum peningum heldur í gjaldmiðlunum hamingju, líkn, heilbrigði og vellíðan sem svo skilar sér aftur inn í þjóðarbúið þegar skjólstæðingarnir ná bata. Við hjúkrum og læknum ekkert hraðar þótt meiri peningur hafi verið lagður í nýtt þjóðarsjúkrahús, sem enn er bara stór hola við Hringbraut. Við hjúkrum og læknum ekkert hraðar þótt þið hafið bætt í mönnun þegar mannskapurinn sem var ráðinn til starfa er hvorki hjúkrunarfræðingar né læknar hvað þá sjúkraliðar, lífeindafræðingar eða geislafræðingar. Það skiptir nefnilega máli hvaða fólk er ráðið inn sjáðu til.

Þú líkir kerfinu við lest sem er í raun skemmtileg og raunsönn líking á heilbrigðiskerfinu. Til að lest komist frá A til B þurfa allir vagnarnir að ferðast á sama hraða, í sömu átt og vera á sama spori. Þú talar um að ef einn vagn á lestinni sé með bilaðan hjólabúnað geti hann dregið alla lestina niður á hraða. Þú ert sennilega að gefa í skyn að Landspítali sé bilaði vagninn en áttar þig ekki á því að það ert þú sem situr við stjórn í bilaða vagninum. Bilaði vagninn er eimreiðin sem á að knýja lestina áfram og ég vona að þú áttir þig á því fyrr en síðar.

Mannauður heilbrigðiskerfis Íslendinga er stórkostlegur og þú tekur það ekki frá okkur með því að lýsa yfir vonbrigðum með afköst okkar. Við höfum vaðið eld og brennistein til að halda lestinni gangandi. Ekki bara síðan faraldurinn hófst heldur miklu fyrr. En þú veist það alveg Bjarni þótt þú hafir kannski ekki viðurkennt það.

Batnandi mönnum er best að lifa og þar sem þú ert einn af lestarstjórunum vil ég hvetja þig til að laga bremsurnar á eimreiðinni og fara að gefa almennilega í. Það er nefnilega eins með lestarstjórana og skipstjórana, það er ekki í boði að stökkva frá borði þegar stórslys er í uppsiglingu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: