- Advertisement -

Ríkið framleiðir öryrkja á færibandi

Afleiðingarnar eru gígantískar.

„Áhyggjur eru af auknum vanda barna í skóla. Þá eru dæmi um að nemendur hafi ekki skilað sér í skóla í eitt til tvö ár. Afleiðingarnar eru gígantískar af því að sjá ekki til þess að börn fái greiningu strax, það bitnar á framtíðinni. Hvað er ríkið að gera í því tilfelli? Jú, það er að framleiða á færibandi öryrkja til framtíðar. Það þarf ekki að segja okkur annað en það að setja eina krónu í þetta málefni sparar tíma. Það margborgar sig. Við vitum afleiðingarnar fyrir þessa einstaklinga og fjölskyldur þeirra ef vinatengsl bresta, skólagangan raskast algjörlega. Þá erum við með slæmt kerfi sem mun bitna illa á heilbrigðiskerfinu í framtíðinni,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólksins, á Alþingi í dag.

„Þess vegna vil ég spyrja hæstvirtan ráðherra: Hve mörg börn eru á biðlista á göngudeild BUGL og hvað hefur hann lengst mikið? Jafnframt vil ég spyrja: Hve mörg börn eru á biðlista legudeildar í dag? Hver er meðalbiðtíminn? Hefur hann lengst og þá hversu mikið? Hvað hafa börnin þurft að bíða lengst eftir þjónustu?“

Svandís Svavarsdóttir.
Skjáskot: RÚV.

Svandís Svavarsdóttir sagði: „Af því að háttbirtur þingmaður spurði sérstaklega um sundurgreindar tölur að því er varðar biðlista á BUGL þá vil ég benda þingmanninum á að þetta er kjörið efni í skriflega fyrirspurn því ég er ekki með hér á hraðbergi tímalengdir og fjölda á biðlistum á einstaka deildum. Hins vegar er það svo að biðlisti eftir göngudeildarþjónustu á BUGL hefur ekki lengst í Covid, það er ég með staðfest núna frá Landspítala,“ sagði Svandís og sagði síðan: „Ég lít á okkur sem samherja í baráttunni gegn fátækt og við skulum halda því áfram.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: