- Advertisement -

DREIFAR FRÁ DJÚPI

Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn skrifaði:

Við Íslendingar erum að sigla inn í þann svakalegasta leðjuslag sem þjóðin hefur upplifað og Mogginn minn fer þar fyrir með hlutdrægni, hálfsannleik, falsfréttum og augljósum ósanindum. Fjölskyldunum fimm sem eiga blaðið og fjármagna það ásamt okkur skattborgurum, finnst greinilega ekki nóg að gert að sitja bara að helmingi sjávarauðlindarinnar, betur má ef duga skal. ESB gæti orðið þeim Þrándur í þeirri Götu. Því verða settir nokkrir milljónatugir í meiri neikvæðni, meiri ósannindi, meiri hræðsluáróður.

„Við skulum spyrja Trump hvort segja megi já,“ segir þingkona Miðflokksins. Er sæmilega greindu fólki sjálfrátt að ætla að láta auðstéttina sem hverfist um kjörorðið „græðgi er góð“ halda sér í þessari skollablindu áfram um ókomna tíð? Heyrandi þá heyrir það ekki og sjáandi þá sér það ekki, hlýtur að vera niðurstaðan.

„Við eigum fiskin í sjónum, við eigum bankana, við eigum lífeyrissjóðina og þjóðin er svo heimsk og við Gyða systir tökum ekki í mál að álpast í ESB,“ segir Edda Björgvins og ég hvet hana til að láta að sér kveða komandi ágústdaga.

Lyftist geð og lifni þjóð.

Leiða allann spörum.

Á Höfuðdaginn hress og rjóð

höfum já á vörum.