- Advertisement -

Einu sinni boðið í Vikulokin á sjö árum

„Mér hefur einu sinni frá árinu 2018 verið boðið að koma í Vikulokin á Rás 1. Frá því að núverandi formaður VR tók við formennsku fyrir tæpu ári hefur henni verið boðið um það bil 270 sinnum, nú síðast í gær.“

Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði.

„Mér hefur einu sinni frá árinu 2018 verið boðið að koma í Vikulokin á Rás 1. Frá því að núverandi formaður VR tók við formennsku fyrir tæpu ári hefur henni verið boðið um það bil 270 sinnum, nú síðast í gær.“

Umræðan/Facebook: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifaði:

„Ég hef verið formaður Eflingar, næst stærsta verkalýðsfélags landins, síðan vorið 2018. Nema í nokkra mánuði veturinn 2021-2022, þegar ég sagði af mér til að geta unnið aftur kosningar um forystu félagsins, svo ég gæti ásamt félögum mínum framkvæmt best heppnuðu skipulagsbreytingar Íslandssögunnar – biðst afsökunar á því að sýna ekki meiri hógværð (samt ekki) en líkt og Rósa Lúxemburg trúi ég því að alltaf eigi að segja sannleikann hátt og skýrt. Ég hef leitt fjölmargar verkfallsaðgerðir og haldið næstum ótal atkvæðagreiðslur um vinnustöðvanir – sem allar hafa verið samþykktar af félagsfólki með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða. Ég hef oft varist fyrir dómstólum fyrir hönd félagsins og oft stefnt þeim sem stjórn hefur talið rétt að stefna. Ég hef gert svo marga kjarasaminga að ég man ekki hvað þeir eru margir. Ég og félagar mínir í stjórn Eflingar höfum fjallað og ályktað um alþjóðamál – sennilega oftast allra verkalýðsfélaga á landinu. Og svo framvegis.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Mér hefur einu sinni frá árinu 2018 verið boðið að koma í Vikulokin á Rás 1. Frá því að núverandi formaður VR tók við formennsku fyrir tæpu ári hefur henni verið boðið um það bil 270 sinnum, nú síðast í gær, til að ræða kjarasamningana sem ég gerði en ekki hún. Og nú, þessa dimmu helgi á glænýju ári, er nóg komið – og ég krefst svara:

Er mér ekki boðið í Vikulokin afþví A. ég er bara með grunnskólapróf, B. ég er átakasækinn aðgerðasinni, C. ég er ekki vók, D. ég er ekki nógu dömuleg, E. þeim finnst ég hundleiðinleg t***a, F. þeim finnst ég heimskt fífl sem veit ekki neitt, eða G. ég er formaður í félagi verkafólks þar sem meira en helmingur er af erlendu bergi brotinn en ekki í félagi íslenskrar millistéttar? Eða allt af þessu?

Ef ég fæ ekki skýr svör innan tveggja sólarhringa neita ég að borga þetta helvítis útvarpsgjald og fer í mál og krefst þess að andvirði gjaldsins verði lagt inn á Litla Kisa svo að hann geti keypt sér rækjur. Ég hef sýnt mikið langlundargeð, bælt niður gildi mín og persónuleika vegna þessarar einbeittu og grófu móðgunnar, en ég fæ ei lengur bælt.

Eins og útvarpsstjóri einn sagði á síðustu öld: „Í mér býr fól“; fólið er biturt og krefst svara!


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: