- Advertisement -

„Ekkert í framtíðarsýn þessa manna sem snýst ekki um að níðast á einhverjum“

Umræðan/Facebook: Atli Þór Fanndal skrifaði:

„Nýjasta myndband Miðflokksins er góð áminning um að sumir menn munu fyrr stofna stjórnmálaafl og kveikja í heiminum en að fara bara í sálfræðimeðferð, öðlast tilfinningagreind og læra að ábyrgð er ekki ofsóknir. Svona menn rústa öllu í kringum sig og soga alla gleði úr öllu. Miðflokksmenn eru sakaðir um skrum, fortíðarþrá, þjóðernishyggju, rasisma og hræðslupólitík svo nokkur dæmi séu nefnd. Allt er þetta rétt en missir kannski smá af aðalatriðinu og horfir á aukaverkanir. Miðflokkurinn er pólitískt afl fólks sem trúir því í alvörunni að lífsgleði annarra sé stolin frá þeim. Þess vegna stendur flokkurinn aldrei fyrir vöxt og gleði, bara vonleysi, hatur og hrun. Það er ekkert í framtíðarsýn þessa manna sem snýst ekki um að níðast á einhverjum. Þeir trúa ekki á uppbyggingu bara á það að taka frá öðrum. Og þeir réttlæta þetta vegna þess að í þeirra huga eru allir að stela af þeim. Það þarf alveg ótrúlegan skort á tilfinningagreind til að trúa því fyrr á hrun siðmenningar en að þú hafir mögulega bara rangt fyrir þér og sért að skálda hættur.“

Heimasíða Miðflokksins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: