- Advertisement -

Eru tölustafir poppúlískir en bókstafir faglegir?

Sigurjón Þórðarson alþingismaður:

Ég taldi mig vita að störf kennara væu bæði krefjandi og erfið í breyttu samfélagi en það sem ég vissi ekki var að skýrir tölustafir væru allt í einu orðnir poppúlískir en bókstafir alls ekki.

Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, skrifar hér um samskipti Ingu Sæland og forystu Kennarasambandsins:

„Inga Sæland hefur; metnað, vilja og skýra sýn á hvernig megi bæta menntun ungmenna á Íslandi m.a. lestrarkunnáttu. Það verður að mínu viti helst gert með því að virkja samfélagið í heild sinni með það að markmiði að setja fræðslu og menntun í forgang.

Eftir að ég hafði lesið sláandi fyrirsögn um ræðu Ingu Sæland á þingi Kennarasambandsins þá lék mér eðlilega forvitni á að vita hvað það var eiginlega sem út af bar. Samandregið ef mark má taka af fréttinni þá virðist það sem hafi farið fyrir brjóstið á formanni Kennarasambandsins, vera að ráðherrann hafi leyft sér að hafa þá skoðun að birta ætti einkunnir frekar sem tölustafi en bókstafi um leið og látið var í það skína að ráðherra væri með þessu tali um tölustafi með eitthvert ódýrt yfiborðsmennskutal á vörum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég taldi mig vita að störf kennara væu bæði krefjandi og erfið í breyttu samfélagi en það sem ég vissi ekki var að skýrir tölustafir væru allt í einu orðnir poppúlískir en bókstafir alls ekki.

Það skemmtilega við lífið er að maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: