Alþingi: Hér hefur verið birt ágætis ræða Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur um Evrópumálið. Sjá hér. Eftir að hún lauk máli sínu kom í ræðustól Þorgrímur Sigmundsson (Ekki Sigmundar Davíðs.) og var ósáttur við utanríkisráðherrann fyrrverandi. Best að gefa honum orðið og síðan er það Þórdís Kolbrún sem endar þessa umfjöllun hér:
Ég bara átta mig ekki á háttvirtum þingmanni.
„Ég þakka háttvirtum þingmanni Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fyrir hennar erindi. Svo það sé sagt, frú forseti, þá var það svolítið í anda þess sem ég hafði átt von á, þ.e. það er og var alltaf flókið að átta sig á því hvað háttvirtur þingmaður stóð fyrir og stendur fyrir í þessu máli er varðar aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mér fannst þessi ræða sem háttvirtur þingmaður flutti hér og nú einmitt vera enn eitt innleggið í það af hennar hálfu. Það er reynt að tala jafnt við báða hópa. Það er reynt einhvern veginn að styggja engan, vera jafn vel stödd, alveg sama hver niðurstaðan verður, og færa það svo í einhvern fallegan búning um að þetta þurfi svo vandaða málsmeðferð — sem ég held reyndar að allur þingheimur taki undir með háttvirtum þingmanni og hafi gert frá því að umræðan hófst í síðustu viku.
Ég held að enginn hafi óskað eftir því að þetta yrði óvönduð umræða né heldur held ég að nokkur hafi dregið í efa að hver og einn þingmaður, og eftir föngum íbúi þessa lands, þurfi að eiga svarið við eigin samvisku. Ég held að það þurfi ekki að eyða löngum ræðum í að fara yfir það. Það var ýmislegt tínt til í yfirferð háttvirtws þingmanns sem ýmist rökstuddi þarfaleysi á því að hefja þessa vegferð, samanber það sem við höfum treyst á hingað til, Atlantshafsbandalagið, EES-samninginn, NATO, varnarsamninginn við Bandaríkin o.s.frv. Síðan var bara svissað yfir í miðri ræðu og farið í að rökstyðja að það þyrfti samt einhvern veginn að láta þessa vegferð alla saman hafa sinn gang. Ég bara átta mig ekki á háttvirtum þingmanni, hvort sem ég hlusta á hana hér í ræðustóli, í sjónvarpsþáttum eða les greinar í blöðum eða frétt á RÚV, hvert viðhorf háttvirts þingmannsins sjálfs er.
Segjum sem svo, háttvirtur þingmaður að niðurstaðan verði sú að það verði til að mynda mjög tæpt, að þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði slök, fylkingarnar verði mjög tæpar, eins og fram hefur komið, 48:52. Afsakið, frú forseti. Hver er skoðun háttvirts þingmanns sjálfs? Er hún hlynnt eða andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið?“
Þorgrímur fór duglega fram yfir skammtaðan tíma og fékk athugasemdir frá þingforseta.
Þórdís Kolbrún svaraði Þorgrími Gunnlaugssyni Miðflokki:
Ekki rétt að saka fólk um stórkostlegar blekkingar.
„Hér er í fyrsta lagi sagt að ég tali í báða hópa og ég heyri ekki betur en að háttvirtur þingmaður telji það bagalegt. Ég er ósammála því. Mér finnst ekki óeðlilegt að þessi umræða um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi sér stað, annars vegar vegna þess að það var skýrt frá því að stjórnarmeirihlutinn varð til — að þetta væri verkefni sem ríkisstjórnin ætlaði sér í. Þar af leiðandi vitum við hvernig það fer; við vitum að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla mun eiga sér stað með einum eða öðrum hætti. Hins vegar nefndi háttvirtur þingmaður að hér væru allir sammála um að vera málefnalegir og gera þetta vel og með sóma. Ég ætla bara að leyfa mér að vera ósammála því.
Mér finnst sumt sem hér hefur komið fram í þessum ræðustól ekki sagt með nægilega miklum sóma. Mér hefur ekki þótt allt sem hér hefur komið fram mjög málefnalegt. Mér finnst ekki rétt að saka fólk um stórkostlegar blekkingar. Það er mikið gert úr blekkingaleik, svo dæmi sé tekið. Það sem ég er bara að benda á er að þetta mál er stærra en flokkapólitík. Þetta mál snýst um Ísland og ekkert annað en það. Við vitum að það er meirihluti fyrir þessari þingsályktunartillögu en við vitum hins vegar líka að það er ekki meirihluti fyrir aðild að Evrópusambandinu á þessu þingi. Hvað varðar spurningu háttvirts þingmanns um hvernig eigi að vinna úr niðurstöðunni: Ég hef heyrt mjög skýrt frá ríkisstjórninni að það er meirihlutinn sem ræður. Ég er hins vegar persónulega þeirrar skoðunar að það þyrfti sterkar undirstöður fyrir þessa risastóru ákvörðun og allt sem í framhaldinu kemur.