- Advertisement -

Fíllinn í stofunni

Nýtt frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar ger­ir ráð fyr­ir því að draga úr stuðningi við stærri fjöl­miðla, þá sem raun­veru­lega eiga í sam­keppni við Rík­is­út­varpið.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifaði:

Umræða um frjálsa fjöl­miðla er orðin að ein­hvers kon­ar oln­boga­barni í ís­lenskri stjórn­má­laum­ræðu. Við höf­um margoft heyrt stjórn­mála­menn tala um mik­il­vægi frjálsra fjöl­miðla og það er búið að skipa nefnd­ir og skrifa skýrsl­ur um það hvernig hægt er að tryggja sjálf­stæði þeirra og rekstr­ar­grund­völl – samt hafa menn aldrei tekið á vand­an­um með raun­sæj­um hætti.

Fjöl­miðlar eru horn­steinn lýðræðis. Þeir gegna mik­il­vægu aðhalds­hlut­verki gagn­vart stjórn­völd­um og eiga að stuðla að upp­lýstri, op­inni og fjöl­breyttri umræðu í lif­andi sam­fé­lagi. Um þetta erum við flest sam­mála.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vand­inn verður þó aldrei leyst­ur með þeim hætti.

Staðreynd­in er aft­ur á móti sú að upp­bygg­ing fjöl­miðlamarkaðar­ins hér á landi ógn­ar þessu grund­vall­ar­hlut­verki fjöl­miðlanna. Í stað þess að horf­ast í augu við rót vand­ans – al­var­lega skekkta sam­keppn­is­stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla – hafa stjórn­völd árum sam­an reynt að plástra yfir gapandi sár með rík­is­styrkj­um til einka­rek­inna miðla. Vand­inn verður þó aldrei leyst­ur með þeim hætti. Til þess að bæta rekstr­ar­um­hverfi ís­lenskra fjöl­miðla verður að ræða fíl­inn í stof­unni.

Rík­is­út­varpið hef­ur alla sína tíð notið ákveðinn­ar sér­stöðu á markaði. Sam­hliða um­fangs­mikl­um bein­um fjár­veit­ing­um úr rík­is­sjóði sæk­ir Rík­is­út­varpið, sem þó má líkja við hverja aðra rík­is­stofn­un, sér líka veru­leg­ar aug­lýs­inga­tekj­ur á markaði. Hér á landi er markaðshlut­deild rík­is­miðils­ins á fjöl­miðlamarkaði nær þriðjung­ur, næst­um þris­var sinn­um meiri en að meðaltali á Norður­lönd­un­um. Styrkj­um til einka­rek­inna fjöl­miðla var komið á fót til að vega upp á móti þess­ari skekkju. Fáir flokk­ar hafa viljað fara aðrar leiðir í þess­um efn­um. Þess í stað hef­ur ríkið búið til ný vanda­mál í stað þess að leysa und­ir­liggj­andi vanda. Allt á kostnað skatt­greiðenda.

Árið 2023 námu styrk­ir til einka­rek­inna fjöl­miðla 470 millj­ón­um króna sem dreifðust á 25 rekstr­araðila. Á sama tíma hlaut Rík­is­út­varpið tólffalt hærra fram­lag en all­ir einka­rekn­ir fjöl­miðlar sam­an­lagt. Það má öll­um vera ljóst að þess­ir styrk­ir duga skammt til að jafna þenn­an mikla aðstöðumun.

Á sama tíma held­ur RÚV áfram að stækka. Það er viss kald­hæðni í þessu.

Rík­is­stjórn­in hef­ur nú boðað enn einn plástur­inn. Nýtt frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar ger­ir ráð fyr­ir því að draga úr stuðningi við stærri fjöl­miðla, þá sem raun­veru­lega eiga í sam­keppni við Rík­is­út­varpið. Á sama tíma og mælt var fyr­ir mál­inu á Alþingi bár­ust frétt­ir af minnk­andi um­svif­um hjá Stöð 2. Á sama tíma held­ur RÚV áfram að stækka. Það er viss kald­hæðni í þessu.

Stóra verk­efnið er að ráðast á fíl­inn í stof­unni, setja um­svif­um hins op­in­bera skýr mörk og tryggja að einka­rekn­ir fjöl­miðlar geti blómstrað og sinnt mik­il­vægu hlut­verki sínu. Við þurf­um í raun ekki bara að ræða fíl­inn í stof­unni, við þurf­um að fjar­lægja hann.

Pistillinn birtist í Morgunblaðinu 5. maí 2025.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: