- Advertisement -

Fjölskyldan er blind af græðgi

Það er sorglegt hvernig lífeyrissjóðir okkar tengjast glæpastarfseminni á Indlandi.

Katrín Baldursdóttir skrifar:

Enn bætist við níðingsskap og lögbrot Samherjaforystunnar. Eimskip stendur fyrir þvílíkri mengun í hinu fátæka Indlandi að ESB segir að íslensk stjórnvöld verði að taka málið föstum tökum. „Stærsti eig­andi Eim­skips er Sam­herji Holding, annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem heldur utan um erlenda starf­semi hennar og eign­ar­hlut­inn í Eim­skip, með 27,06 pró­sent hlut. Stjórn­ar­for­maður Eim­skips er Bald­vin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Sam­herja. Bald­vin á nú 20,5 pró­sent hlut í Sam­herja hf., hinu félag­inu sem myndar Sam­herj­a­sam­stæð­una. Sam­herji er með tvö af fimm stjórn­ar­sætum í Eim­skip auk þess sem sam­steypan styður einn óháðan stjórn­ar­mann óskorað til stjórn­ar­setu. Í jan­úar 2019 var svo ráð­inn nýr for­stjóri Eim­skips, Vil­helm Már Þor­­­­steins­­­­son. Hann er frændi stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Sam­herja.“ Málið var tekið fyrir í Kveikþætti gærkvöldsins.

Græðgi Samherjafjölskyldunnar ríður ekki við einteyming og siðblindan sömuleiðis. Fjölskyldan er svo blind af græðgi að hún veður yfir sjó og lönd fátækra þjóða. Ránsfengurinn er svo gígantískur að manni fallast hendur. Ímyndið ykkur hvað þessi fjölskylda hefur hirt af íslenskri þjóð. Stolið auðlindum okkar miskunnarlaust með leyfi stjórnvalda.

En það er sorglegt hvernig lífeyrissjóðir okkar tengjast glæpastarfseminni á Indlandi. „Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga meira en helm­ing í Eim­skip. Stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Birta eiga sam­tals 43,2 pró­sent í skipa­fé­lag­inu. Allir sjóð­irnir hafa sam­fé­lags­lega ábyrgð að leið­ar­ljósi í starf­semi sinni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: