- Advertisement -

Formannsslagur framundan í Framsókn

Umræðan: Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknar, tilkynnti formannsframboð fyrir fáum dögum. Nú hefur varaformaðurinn, Lilja Alfreðsdóttir, einnig gefið kost á sér til formanns. Ingibjörg sagði miklu betra ef formaður flokksins eigi sæti á Alþingi.

Vísir spurði Lilju um þetta: Sumir kynnu að segja að það hljóti að vera veikleiki fyrir flokkinn að vera með formann sem fékk ekki einu sinni brautargengi í síðustu alþingiskosningum. Er það ekki?

„Alls ekki. Nei, nei,“ svarar ráðherrann fyrrverandi.  „Við erum öll reynslunni ríkari og það er þannig að að ég kem inn með mjög mikla reynslu, en ég brenn bara það mikið fyrir samfélagið og ég tel að við séum ekki á réttri leið í efnahagsmálunum, við erum ekki á réttri leið í utanríkismálunum. Og þess vegna finn ég mig knúna til þess að stíga fram og leiða flokkinn aftur inn í nýja tíma.“

Hún bætir svo við: „Og jafnvel þó að síðustu kosningarnar hafi farið eins og þær fóru, þá hefur það ekkert dregið úr mér sem hugsjónakonu, nema síður sé.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ögn meira frá Vísi:

Hvernig hyggstu stækka flokkinn?

„Með því að hlusta á þjóðina. Með því að sjá hvað við getum gert betur,“ segir hún.

Nýverið stigu Ingibjörg Isaksen og Sigurður Ingi Jóhannsson, fráfarandi formaður, fram og lýstu ófremdarástandi í menntamálum og buðust til að leiðbeina ríkisstjórninni. Lilja var menntamálaráðherra, meðal annars á þeim tíma, sem Ingibjörg og Sigurður Ingi nefndu sem mislukkaða stefnu í menntamálum.

Ætla má að Sigurður Ingi hafi tekið afstöðu. Hann mun þá styðja Ingibjörgu.

Fjörið í Framsókn á eftir að aukast.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: