- Advertisement -

Fúlmenni með vafasamar hvatir finnast í öllum trúarhópum

Trúarbrögð:

Gauti B. Eggertsson skrifaði og tekur fram að mynskreytingin tengist að sjálfsögðu greininni ekkert.

„Hérna í New York borg eru um 4% kjósenda múslimar. Þar kaus meirihluti kjósenda múslima sem borgarstjóra. Í Michigan eru um 2% íbúa múslimar. Þar kaus meirihluti kjósenda nýverið múslima, Abdul El-Sayed, sem fulltrúa sinn í öldungadeild Bandaríkjaþings. Almennt er bara fín stemmning í Michigan og New York.

Nú vill svo til að um 26% mannkyns eru múslimar og 29% kristnir. Bæði íslam og kristni eru abrahamísk trúarbrögð, sprottin úr sömu trúarhefð og gyðingdómur. Þau eiga sér sameiginlega spámenn, sögur og trúarlegar rætur. Kristni byggir á Gamla og Nýja testamentinu, en Nýja testamentið situr þó skörinni hærra. Íslam viðurkennir fyrri opinberanir, sem endurspeglast í Gamla og Nýja testamentinu, en Kóraninn situr þar skörinni hærra.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hitt vitum
við með vissu.

Þessi tvö trúarbrögð ná því til meira en helmings mannkyns. Að halda því fram að fólk sem aðhyllist íslam geti ekki lifað í sátt og samlyndi við fólk sem aðhyllist kristni lýsir djúpstæðri vanþekkingu á menningu okkar og sögu mannkynsins. Maður sér þröngsýnt þúfnagöngulagið langar leiðir.

Hitt vitum við með vissu. Fúlmenni með vafasamar hvatir finnast í öllum trúarhópum. Enginn trúarhópur hefur einkarétt á slíku fólki. Siðlaus og öfgafull umræða, gegnsýrð af mannfyrirlitningu, virðist hafa færst í aukana meðal öfgafólks í báðum trúarhópum undanfarin ár. Sem betur fer er þetta mjög þröngur hópur sem höfðar til dæmis ekki til almennra kjósenda hérna í Bandaríkjunum, líkt og dæmin sanna. En þessi fámenni, fúllyndi hópur öskrar hærra en venjulegt fullorðið fólk.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: