Stjórnmál:
Sigurjón Þórðarson skrifaði:
„Það er átakanlegt að fylgjast með Lilju Alfreðsdóttur núverandi formanni Framsóknarflokksins og því miður mörgum flokksfélögum hennar leggjast gegn nauðsynlegum breytingum á menntakerfinu. Nú síðast með órökstuddum ályktunum á miðstjórnarþingi flokksins. Sjálf sat Lilja í stóli menntamálaráðherra fyrir ekki svo mörgum árum og fara fáar sögur af afrekum hennar í því embætti.
Námsárangri barna og ungmenna hrakaði mikið á síðasta valdatíma Framsóknar í ráðuneytinu án þess að spyrnt væri við fótum. Það er kynlegt hjá miðstjórn Framsóknar saka núverandi ríkisstjórn um að sjá sveitarfélögunum ekki fyrir nægjanlegu fjármagni til að framfylgja farsældarlögum barna. Nýleg skýrsla Ríkisendurskoðunar hefur nefnilega leitt í ljós að illa var staðið að innleiðingu laganna í tíð Framsóknarflokksins við stjórn mennta- og barnamála.
Þá hefur núverandi
mennta- og barnamála-
ráðherra nýlega samið…
Núverandi ríkisstjórn hefur hins vegar fylgt farsældarlögunum eftir með nýrri aðgerðaráætlun sem nú liggur fyrir Alþingi ásamt heildarendurskoðun á barnaverndarlögum. Þá hefur núverandi mennta- og barnamálaráðherra nýlega samið við sveitarfélögin um yfirtöku ríkisins á þriðja stigs þjónustu við börn með flóknasta vandann sem þurfa þjónustu utan heimilis síns.
Aukin framlög til sveitarfélaga
Samkvæmt þessu samkomulagi fá sveitarfélögin nýja fjármögnun upp á um þrjá milljarða króna til að sinna fyrsta og annars stigs þjónustunni. Framsókn fer hins vegar fremst í flokki þeirra sem stagast á því að það samkomulag hafi verið svikið sem er alrangt.
Til viðbótar er nú unnið að endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla þar sem fyrsta skrefið er að einkunnir nemenda í tíunda bekk næsta vor verða gefnar í tölustöfum. Nýja einkunnakerfið leysir hólmi illskiljanlegt einkunnakerfi sem börn og foreldrar hafa kallað eftir að verði breytt. Fjöldi skóla hefur tekið þessari breytingu fagnandi og jafnvel innleitt kerfið hjá fleiri aldurshópum. Þessar jákvæðu breytingar mæta einnig óskiljanlegri og ómálefnalegri andstöðu þingmanna Framsóknarflokksins.
Fjölmörg framfaraspor
Inga gaf nýlega út reglugerð um símafríi í skólum og stefnt er að því að setja 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðlanotkun barna. Þannig er sköpuð meiri ró í skólastarfinu og börnin fá meira næði til að sinna náminu og raunverulegum samskiptum sín í milli.
Aðgerðaáætlun vegna farsældar barna, endurskoðun barnaverndarlaga sem tryggir börnum aukin réttindi og samfellda þjónustu, ásamt átaki til að auka lesskilning og stærðfræðiþekkingu barna og ungmenna eru sameiginlega til stórkostlegra bóta. Þá er lögð aukin áhersla á verknám með uppbyggingu fimm verknámsdeilda við framhaldsskóla vítt og breitt um landið.
Það væri óskandi að Framsóknarflokkurinn finni sér önnur baráttumál en að standa í vegi fyrir nauðsynlegum umbótum í menntakerfinu. Umbótum sem flokknum var um megn að koma á í sjö ár í mennta- og barnamálaráðuneytinu.“