Grindavík:
Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
Maður skyldi ætla að fyrrverandi biskupsritari hafi fengið tilsögn í fordómaleysi á skrifstofu biskups, þar sem allir eru jafnir fyrir Guði. Kyn, litarháttur, kynhneigð eða efnahagur eiga ekki að skipta máli. En svo virðist ekki vera. Pétur Markan, fyrrverandi biskupsritari og núverandi bæjarstjóri Grindavíkur, var vís að grófum fátæktar fordómi í Kastljósi gærkvöldsins.
Ein af meginröksemdum hans fyrir því að fyrrverandi íbúar Grindavíkur fái að snúa aftur byggist á efnahagslegu mikilvægi bæjarins. Hann benti á að Grindavík hefði verið meðal þeirra sveitarfélaga sem lögðu hvað mest til þjóðarbúsins og gaf þannig í skyn að sérstakar ástæður væru því til staðar að ráðast í endurreisn byggðarinnar. Samt hefur landinu nú vegnað ágætlega undanfarin ár án Grindavíkur.
Þessi nálgun fyrrum biskupsritara er meira en varasöm, hún er hættuleg. Hvernig eigum við að skilja hana öðruvísi en svo að þegar samfélag verður fyrir áfalli af völdum náttúruhamfara sé fyrst dregin fram fjárhagsleg mælistika áður en metið er hvort réttlætanlegt sé að byggja það upp á ný?

Ef það er mælikvarðinn, hvað með þau byggðarlög sem hafa takmarkað atvinnulíf eða leggja minna af mörkum til þjóðarframleiðslunnar? Hvað með þorpin sem eru fyrst og fremst heimili fólks en ekki efnahagslegar aflvélar? Á þá einfaldlega að sýna þeim löngutöng, upprétta?
Alls ekki.
Samfélög eru ekki reikningsdæmi. Þau eru fólk, saga, tengsl, menning og samkennd. Verðmæti samfélags verður ekki mælt eingöngu í krónum og aurum eins og rammir kapítalistar halda, heldur hvernig þau bregðast við í neyð þegar óáran hvolfist yfir, hvernig komið er fram við fólkið sitt þegar mest á reynir.
Þess vegna veldur það mér áhyggjum þegar stjórnmálamenn nálgast samfélagsmál fyrst og fremst út frá fjárhagslegum mælikvörðum. Slík hugsun birtist reglulega hjá nýja meirihlutanum í Reykjavík, þar sem allt virðist þurfa að standast excel-skjal áður en það fær rétt til að vera til. Það sést meðal annars í umræðunni um hjólhýsafólkið í Reykjavík, þar sem mannlegar þarfir víkja fyrir bókhaldi, ónýtum hagkvæmnisútreikningum og fátæktar fordómum.
Sú nálgun er ekki raunsæi. Hún er samfélagsfirring og aðeins guðsgeldingar halda slíku fram.
Því færi best á því að fyrrverandi biskupsritari viðurkenndi mistök sín og drægi orð sín til baka. Amen.