Ferðaþjónustan:
Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
Það er eiginlega óhugnanlegt að verða vitni að vanþekkingu frekjunnar í ferðaþjónustunni. Hún á kannski ekki að koma á óvart enda er frekasti maður Íslands í forsvari, Jóhannes Þór Skúlason. Sá kann þá list best að vera með eintóna barlómasöng þótt ferðamönnum til Íslands fjölgi ár frá ári.
Og verst af öllu er að frekjan segir að ríkið, sem á ýmsar náttúruperlur, megi helst ekki hafa af þeim tekjur þótt þær skapi á endanum skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar í ferðaþjónustu. Einkageirinn, sem ekki á ríkisperlurnar, má bara græða á náttúrunni en ríkið á aftur á móti að hirða kostnaðinn við uppbyggingu innviða. Landsmenn eiga sem sagt að niðurgreiða rekstur ferðaþjónustunnar.
Hótanirnar og áróður
Jóhannesar eru í hróplegu
ósamræmi við viðhorf…
Eitt af nýjustu útspilum ferðaþjónustunnar er að ef innviðagjald verður sett á muni ferðaþjónustuaðilar einfaldlega koma erlendum ferðamönnum að náttúruperlum landsins úr annarri átt en þar sem innviði er að finna. Í nafni yfirgangs á bara að troða ósnertum víðernum niður í svaðið sem mest má, þótt erlendu ferðamennirnir séu að mestu komnir til landsins til að dást að óspjallaðri náttúru.
Hótanirnar og áróður Jóhannesar eru í hróplegu ósamræmi við viðhorf og vilja erlendra ferðamanna, sem finnst sjálfsagt að greiða fyrir aðgengi að náttúrunni gegn góðum innviðum.
Til að bíta síðan höfuðið af skömminni halda Samtök ferðaþjónustunnar úti fundarherferð undir yfirskriftinni hvort stjórnvöld séu helsta hindrun ferðaþjónustunnar. Ég man ekki betur en að stjórnvöld hafi bjargað starfsgreininni frá gjaldþroti á tímum heimsfaraldursins með fúlgum fjár úr ríkissjóði. Já, frekasti maður Íslands launar aldrei ofureldið. Alls ekki.
Freklyndi Samtaka ferðaþjónustunnar skeytir heldur ekki um rétt samhengi eða trúverðugleika eigin áróðurs. Tefldu samtökin á dögunum fram Frímanni Snæ Guðmundssyni, meðeiganda hjá Deloitte, og fengu hann til að segja landanum að væntanlegar leiðréttingar á skattkerfi landsins jafngildi helmingi hagnaðar ferðaþjónustunnar á árinu 2024. Það var og!
Það vill svo til að stjórnvöld eru ekki að sækjast eftir því að helminga hagnað ferðaþjónustunnar heldur auka hann með uppbyggingu betri innviða. Féð á að koma frá ferðamönnunum enda hafa þeir sjálfir sagt að innviðagjald fælir þá ekki frá því að koma til landsins ef gjaldtakan skilar betri og öruggari innviðum. Það er beinlínis aðlaðandi í augum ferðamanna að geta gengið að nútímalegum innviðum vísum.
Í hvert sinn sem
rætt er um gjaldtöku
eða skattabreytingar
sem snerta ferðaþjónustuna
eru boðaðar hörmungar.
Evrópsku ferðamannasamtökin taka einmitt undir þetta sjónarmið og eru ekki á móti innviðagjöldum. Þau telja þau réttlætanleg ef tekjurnar eru sýnilega endurfjárfestar í innviðum og þjónustu sem nýtist bæði heimamönnum og ferðamönnum. Hér gildir að ávinningurinn sé sýnilegur.
Varðandi spurninguna um hvort ferðamenn séu sáttir við að greiða meira ef peningarnir fara í náttúruvernd og innviði þá hefur það komið fram í fjölmörgum alþjóðlegum rannsóknum að viðhorfin eru almennt jákvæðari þegar gjaldið er hóflegt, tilgangurinn er skýr og fjármunirnir fara sýnilega í stíga, salerni, bílastæði, landvörslu og vernd náttúruperla.
Sama sagan hefur raunar verið sögð oftar en einu sinni. Í hvert sinn sem rætt er um gjaldtöku eða skattabreytingar sem snerta ferðaþjónustuna eru boðaðar hörmungar. Á sama tíma heldur ferðamönnum áfram að fjölga, fjárfesting eykst og fyrirtæki greinarinnar skila ágætum rekstrarárangri. Svartnætisspárnar standast einfaldlega illa tímans tönn.
Sem sagt, innviðagjald mun til langs tíma ekki draga úr heimsóknum erlendra ferðamanna heldur þvert á móti. Gjaldið skapar skilyrði fyrir aukinni verðmætasköpun í ferðaþjónustu enda draga góðir innviðir ferðamenn að sér á sama hátt og þegar Íslendingar ferðast til sólarlanda.
Allur áróður frekasta manns Íslands eldist afar illa og alveg sérstaklega þegar maður skoðar hlutafjárútboð Bláa lónsins sem hófst í vikunni. Þar eru menn fullir bjartsýni og setja markið hátt. Kannski of hátt, en það er önnur saga. Ef áætlanir fyrirtækisins eiga að ganga eftir eru áreiðanlegir innviðir grundvallarforsenda í öllum arðsemisútreikningum þess. Og fyrirtækið lætur ekki leiðréttingar á skattkerfinu stöðva sig. Ekki frekar en önnur vel rekin fyrirtæki í ferðaþjónustunni.
Ósvöruð er því sú spurning hvort hátterni og áróður Jóhannesar og Samtaka ferðaþjónustunnar séu ekki farin að vinna með beinum hætti gegn hagsmunum ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan þarf talsmann sem sér tækifæri í uppbyggingu, ekki mann sem sér hindranir í hverri breytingu. Er þá ekki tímabært að skipta um mann í brúnni?