Stjórnmál:
Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
Sjálfstæðisflokkurinn er eins og maður sem horfir í spegil og líst illa á það sem blasir við.
Á Alþingi er flokkurinn í sömu tilvistarkreppu. Fylgið hefur aldrei verið minna og flokkurinn virðist ekki lengur vita fyrir hvað hann stendur. Hann telur aftur á móti að fylgistapið sé öllum öðrum að kenna. Þess vegna er formaður flokksins sífellt á höttunum eftir næstu mýflugu sem hægt er að blása upp í úlfalda í stað þess að færa eitthvað málefnalegt fram.

Það er eitthvað sérkennilega óaðlaðandi við pólitískan hóp sem leitar að skratta í hverju horni en rekst sífellt á eigin spegilmynd. Þá er auðvitað freistandi að kenna speglinum um. Málefnaleg umræða getur beðið, fyrst þarf að rannsaka hver hengdi spegilinn upp.
Viðbrögð flokksins við því að Hörður Arnarson skyldi sjálfur ákveða að láta af störfum eru að mínu viti stormur í fingurbjörg.
Af umræðunni að dæma virðist þungamiðjan vera sú að stjórnarmenn Landsvirkjunar hafi rætt sín á milli og við ráðherra um stjórnarhætti utan formlegs stjórnarfundar. Eins og óformlegt samtal sé bannað þar til það hefur fengið fundarboð, dagskrá og númer í fundargerð.
Maður gæti haldið að Sjálfstæðisflokkurinn hefði annað við tímann að gera en að mæla vindhraða í fingurbjörg. En þegar eigin stefna á ekki upp á pallborðið er alltaf hægt að gera formsatriði að stórviðburði. Þá þarf ekki að svara erfiðu spurningunni, hvað höfum við fram að færa? Það nægir að spyrja með þjósti, hver talaði við hvern, og var fundarritari viðstaddur? Og svo má teygja lopann út í hið endalausa.
Þannig birtist mér Sjálfstæðisflokkurinn sem skel utan um það sem einu sinni var. Önnum kafinn við að rembast með enn einum hneykslunarsvipnum. Það þarf aftur á móti eitthvað meira en hávaða til að verða pólitískt aðlaðandi. Þar til það finnst má þó treysta á eitt, í fingurbjörginni verður áfram hvassviðri og húmorsleysi.