- Advertisement -

Gagn eða gaman?

Facebook: Páll Magnússon skrifaði:

Ég sé að fjárlaganefnd Alþingis hefur ákveðið að bjóða sjálfri sér í „fræðsluferð“ til Frakklands og Ítalíu í næsta mánuði – m.a. til að „heimsækja efri deildir ítalska þingsins í Róm“.

Ég sat í fjárlaganefnd í fimm ár og á þeim tíma hafði enginn nefndarmaður hugmyndaflug til að leggja fram tillögu um svona ferð. Enda afar erfitt að koma auga á tilganginn. Ég hefði haft gaman af að vera á þeim fundi þegar nefndin sannfærði sjálfa sig um að það væri gagnlegt – hvað þá nauðsynlegt – að nota almannafé í þessa ferð.

Af öllum nefndum Alþingis ætti einmitt fjárlaganefnd að sýna betra fordæmi en þetta.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: