- Advertisement -

Helgi Hrafn er með Covid-19

Hvað varðar mína eigin heilsu, þá er hún ágæt enn sem komið er.

„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19,“ skrifar Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata.

„Af þeirri örstuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúkdómi er mér orðið ljóst að fólk verður hratt óttaslegið og óþreyjufullt eftir upplýsingum. Því vil ég minna á að þetta er ferli, og smitrakning tekur einhvern tíma. Greiningin kom í gærkvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sérfræðinga eða nákomna, sinna smitrakningu og tilflutningi í einangrun.

Ef þið hittuð mig á mánudag eða þriðjudag og við umgengumst hvort annað í meira en 15 mínútur, og ekki hefur verið haft samband við ykkur frá smitrakningu nú þegar, getið þið haft samband við mig og ég svara eftir bestu getu. Ég hef haft samband við sum ykkar en ekki önnur og stýrist það af aðstæðum. Ykkur er frjálst að henda í mig spurningum ef þið hafið áhyggjur, en athugið að ég er ekki sjálfur endilega með öll svörin. Ég reyni mitt besta til að upplýsa fólk með áhyggjur eftir bestu vitund.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hvað varðar þingstörf, þá bendi ég á að þingið hefur ekki verið starfandi síðan 4. september, og tekur ekki til starfa aftur fyrr en 1. október. Þannig að þótt COVID-19 smit sé alltaf óheppilegt, þá er tímasetningin gagnvart þingstörfum ekki sú versta upp á smitleiðir og þingstörf að gera. Að sjálfsögðu er þó farið í einu og öllu eftir tilmælum og ráðgjöf sóttvarnaryfirvalda þegar kemur að þingflokknum og starfsfólki hans, t.d. hvað varðar sóttkví. Þá er Alþingi að sjálfsögðu meðvitað um stöðuna og hefur gert viðeigandi ráðstafanir.

Hvað varðar mína eigin heilsu, þá er hún ágæt enn sem komið er, en auðvitað verðum við bara að sjá hvað setur. Ég fæ heilræði frá þeim sem þekkja best til.

Endilega farið varlega. Það kom mér ekki minna á óvart að smitast en það kæmi þér að smitast núna. Við erum öll almannavarnir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: