- Advertisement -

Nýi spítalinn mun ekki leysa vandann

Þetta er bara algjörlega óbjóðandi fólki. Þetta er fráhrindandi vinnuumhverfi.

Það var merkilegt að heyra hvað Svanur Sigurbjörnsson lyflæknir sagði í morgunúrvarpinu. Samkvæmt því er heilbrigðiskerfið hér langt á eftir öllu og öllu. Hér stórvantar fleiri legurými. Svanur sagði að nýr spítali muni alls ekki leysa þau vandamál sem hér eru.

„Þegar nýr meðferðarkjarni Landspítala verður tekinn í notkun mun áfram vanta rými fyrir sjúklinga. Þetta segir Svanur Sigurbjörnsson lyflæknir. Nú þegar sé fjöldi sjúkrarúma á mann töluvert minni en í nágrannaríkjunum og nýi spítalinn muni ekki duga til,“ segir í frétt á ruv.is.

„Það er talið æskilegast að legurými sjúkrahúsa séu að meðaltali fyllt að 80-85% en við erum með 100% nýtingu allan tímann. Svo bara fjöldi rýmanna. Þar stöndum við aftar en nágrannaríkin. Þar skortir um þriðjung rýma. Tölurnar eru 3,94 í Evrópuríkjum en við erum í 2,85 rúm per þúsund manns. Þannig að við stöndum þarna halloka,“ segir Svanur Sigurbjörnsson lyflæknir í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hann segir að við þessar aðstæður verði keðjuverkun.

„Rýmin skapa biðlista, biðlistar skapa meiri veikindi. Það eru þrengsli á sjúkrahúsunum þar sem fólk liggur á göngum bráðamóttökunnar og kemst ekki inn á deildir. Þetta er bara algjörlega óbjóðandi fólki. Þetta er fráhrindandi vinnuumhverfi. Læknar vilja síður koma heim og læknar og hjúkrunarfræðingar fara í aðrar starfsgreinar,“ segir Svanur.

Spár gerðu ráð fyrir að nýr meðferðarkjarni Landspítala ætti að vera risinn og tekinn í notkun 2026. Svanur segir að hann muni ekki duga til.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: