- Advertisement -

Hersir„lækaði“ færslu á Facebook og Bankasýslan kvartaði: „Ég kann ekki við slíkt eftir­lit“

Hersir Sigurgeirsson, dósent í fjármálum við Háskóla Íslands, segist ætla að hætta allri ráðgjöf fyrir Ríkisendurskoðun vegna umdeildar sölu á hlut ríksins í Íslandsbanka. Ástæðan sé sú að Bankasýslan kvartaði til Ríkisendurskoðanda vegna þess að dósentinn „lækaði“ færslu á Facebook sem snéri að útboðinu.

Hersir er afar ósáttur við þetta eftirlit og hefur nú alfarið sagt sig frá úttektinni á sölu Íslandsbanka og allri ráðgjöf til Ríkisendurskoðunar. Hann skýrir mál sitt í færslu á Facebook:

„Kæru vinir, mig langar að segja ykkur örstutt frá starfsháttum Bankasýslunnar sem ég hef fengið að kynnast á undanförnum dögum.

Ríkisendurskoðandi hafði samband við mig hinn 11. apríl sl. og óskaði eftir því að ég yrði Ríkisendurskoðun til ráðgjafar við úttekt á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.Ég ákvað að verða við beiðninni, enda með viðeigandi þekkingu og reynslu vegna starfa minna á fjármálamarkaði og við Háskólann, og hef unnið að verkefninu undanfarnar vikur. Bankasýslan, Fjármálaráðuneytið og fleiri sem úttektin tekur til voru upplýst um mína aðkomu að henni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í fyrradag fékk ég svo símtal frá ríkisendurskoðanda sem sagði mér að honum hefði borist bréf frá Bankasýslunni með ábendingu um að ég hafi sett “like” á tiltekna færslu á fb sem varðaði útboðið. Bréfið var alls þrjár síður, sent af starfsmanni Bankasýslunnar og undirritað rafrænt af forstjóra hennar.

Ég tók að mér þetta verkefni til að leggja mitt af mörkum til að gera úttektina betri. Þegar forstjóri og starfsmenn Bankasýslunnar eru farnir að verja tíma sínum í að rekja ferðir mínar á samfélagsmiðlum og tilkynna skriflega, rafrænt undirritað, um “like” finnst mér þó ástæða til að staldra við. Ég kann ekki við slíkt eftirlit. Það er alvarlegt þegar starfsmenn ríkisstofnunar telja eðlilegt að leggjast í rannsókn á skoðunum ráðgjafa óháðra úttektaraðila og gera það á jafn hæpnum og huglægum forsendum og hér birtast.Það er ekki hægt að setja “like” við þessi vinnubrögð og ljóst að nauðsynlegt er að opinbera þau.

Ég sé ekki aðra skýringu á bréfaskrifum Bankasýslunnar en að hún telji sig geta notað þau til að kasta rýrð á úttekt Ríkisendurskoðunar ef einhverjar niðurstöður hennar verða stofnuninni ekki að skapi. Það hugnast mér ekki og því ákvað ég í gær að ljúka aðkomu minni að úttektinni.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: