- Advertisement -

Hvað var í gangi í Noregi?

Umræðan/Facebook: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifaði:

„Hvað var í gangi í Noregi? Mette-Marit krónprinsessa er mikið í fréttum vegna tengsla við hinn siðlausa Epstein en hitt er alvarlegra að norskir áhrifamenn úr pólitík og diplómasíu virðast hafa verið ansi ginkeyptir fyrir greiðasemi Epsteins. Helstir eru þar nefndir topdiplómatinn Terje Rød Larsen, Børge Brende fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi framkvæmdastjóri World Economic Forum í Davos og Torbjørn Jagland fyrrverandi utanríkisráðherra og framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Og nú liggur fyrir að synir Terje Rød Larsen erfa formúur fjár eftir Epstein. Hvernig stendur á því, hvað gerði Terje fyrir Epstein? Um Terje væri hægt að hafa langt mál en hann var milligöngumaður milli Ísraelskra stjórnvalda og PLO þegar Oslóarsamkomulagið var gert 1994.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: