Jónína Brynjólfsdóttir oddviti Framsóknar í Múlaþingi og varaþingmaður skrifaði:
Kæru vinir
Mig langar að tilkynna framboð mitt til embættis ritara Framsóknarflokksins.
Flokkurinn stendur nú á tímamótum. Fylgi okkar hefur sveiflast og við höfum misst tengsl við kjósendur sem áður voru sterk. Nú liggja okkar áskoranir og tækifæri í því að efla innviði flokksins og færa hann nær fólkinu á ný.
Ef við ætlum að ná árangri…
Grasrótin er hjarta flokksins og þar liggur lykillinn að velgengni hans. Þar kvikna hugmyndir, við finnum stuðning og samstöðu, deilum reynslu og lærdóm og síðast en ekki síst njótum þess að vinna í stjórnmálum saman, verja tíma saman. Sem ritari vil ég vinna markvisst að því að hlusta á raddir félaga og félaganna. Sterkt innra starf, virkt félagslíf og opið samtal milli aðila er forsenda þess að við getum staðið saman, talað einni röddu og náð árangri saman.
Hlutverk ritara innan forystunnar hefur verið vanmetið á undanförum árum og það er kominn tími til að tryggja að ritari sé ekki að sinna hlutverki sínu milli fjölda annarra verkefna. Ef við ætlum að ná árangri þurfum við að virða verkefnið, styrkja það og gefa ritarastarfinu tíma og hefja það til þeirrar virðingar sem það á sannarlega skilið. Ritara verður að gefast tækifæri á því að eiga bein samskipti við grasrótina um allt land.
Næstu sveitarstjórnarkosningar eru stærsta verkefni komandi veturs. Þar reynir á skipulag, undirbúning og samstöðu flokksins. Ég vil leggja sérstaka áherslu á að styðja listana og félög við undirbúning, vinna að því að miðla reynslu milli svæða og tryggja listarnir hafi þau verkfæri sem þarf til að ná árangri. Með öflugri rót á sveitarstjórnarstigi tryggjum við sterka framtíð Framsóknar.
Framsóknarflokkurinn er leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum. Með sterkri grasrót, samstilltu innra starfi og traustu samstarfi við samfélagið getum við endurheimt traust og aukið áhrif okkar bæði á landsvísu og í heimabyggð. Ég er reiðubúinn að leggja mig alla fram til að þessi sýn verði að veruleika.
Ég mun leggja mig því fram í því að þjóna flokknum í þessu mikilvæga hlutverki og bið um stuðning ykkar til að vinna þetta starf af heiðarleika, festu og framsýni, með ykkur.