- Advertisement -

Kolbeinn setur sér „ákveðnar reglur“

„Mig langar að leggja aðeins orð í belg varðandi umræðuna í stjórnmálum sem við höfum rætt hér síðustu daga og vikur, og ekki að ósekju í kjölfar hryllilegra fregna af því að skotvopnum hafi verið beitt bæði á bíl borgarstjóra og skrifstofur stjórnmálaflokka. Ég sat fund þingmannanefndar Eystrasaltsráðsins á mánudag og þar var akkúrat verið að fjalla um þessi mál og hvernig staðan er t.d. í Svíþjóð því að þetta er alþjóðlegt vandamál. Þar er staðan sú að einn af hverjum þremur stjórnmálamönnum hefur orðið fyrir áreiti, hótunum, ofbeldi og ákveðið að tala ekki um einstaka mál af ótta við þetta allt saman. Þar er staðan sú að fjórir af hverjum tíu blaðamönnum hafa forðast að fjalla um ákveðin málefni vegna hótana,“ sagði Kolbeinn Óttarsson Proppé á Alþingi í gær.

„Það er grafalvarleg staða sem við búum við alls staðar í heiminum þótt ég hafi horft til Svíþjóðar vegna þess að mér bárust þessar upplýsingar á umræddum fundi. Ég held að við hér inni og við öll sem tökum þátt í stjórnmálum þurfum að vera mjög vakandi gagnvart þessu. Við þurfum að taka saman höndum um að gera allt sem í okkar valdi stendur til að sporna gegn þessu. Ég er þannig gerður að ég reyni að horfa á hlutina og sjá hvað ég get lært af þeim. Í ljósi alls þess sem gerst hefur hef ég ákveðið að setja mér ákveðnar reglur. Ég hef ákveðið að haga orðum mínum ekki þannig að saka samþingfólk mitt sem ákveður að fara eina leið umfram aðra við afgreiðslu þingmála um ofbeldi, að saka þau ekki um landráð sem hafa aðrar skoðanir en ég hef, að kalla þau ekki illum nöfnum eða saka um mannvonsku, að segja fólki ekki að „fokka“ sér í opinberri umræðu og að reyna ekki að nota niðrandi og smættandi merkimiða. Þetta er það sem ég hef ákveðið að gera í þessari umræðu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: