- Advertisement -

Konan í kasmírkápunni

Össur Skarphéðinsson er höfundur þessarar greinar:

Um daginn spáði ég því að gagnrýnislaus fylgisspekt Sjálfstæðisflokksins við sérhagsmuni örfárra sægreifa myndi halda áfram að tæta af honum fylgið. Í Gallup gærdagsins féll svo flokkurinn um enn eitt prósentið.

Það er engu líkara en Sjálfstæðisflokkurinn sé í sorgarferli eftir að hafa ekki lengur nein völd og skipta ekki lengur máli, hvorki við stjórn landsins né Reykjavíkurborgar; hvergi nema í ræðupúlti Alþingis sem enginn nennir lengur að hlusta eftir. Valdalaus og án tengsla við veruleikann og fólkið.

Formaðurinn veit ekki sitt rjúkandi ráð, vill vel en virðist engu ráða. Hún hefur ekki einu sinni styrk til að skipta út Hildi þingflokksformanni sem sýnir engin merki þess að styðja nýkjörinn formann nema með hangandi hendi – enda úr liði Áslaugar Örnu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í hinni bröttu brekku sorgarinnar virðist alger upplausn ríkja í þingflokknum.

Sögulegir risar flokksins, Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson eldri, myndu líklega snúa sér við í kaldri gröf mættu eyru þeirra og augu nema hvernig arftakar þeirra fara höndum um lýðræðið, sem þeim var svo dýrmætt.

Örvinglaðir þingmenn, sem endranær virtust með réttu ráði, hvæsa froðufellandi að málþófi í veiðigjaldsmálinu muni aldrei linna. Hótanir fljúga þar sem bókstaflega er sagt að þrasað verði út í hið óendanlega í málþófi þangað til sægreifarnir ná sínu fram!

Sögulegir risar flokksins, Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson eldri, myndu líklega snúa sér við í kaldri gröf mættu eyru þeirra og augu nema hvernig arftakar þeirra fara höndum um lýðræðið, sem þeim var svo dýrmætt.

Vörnin fyrir sérhagsmuni sægreifanna er að verða Sjálfstæðisflokknum mjög dýrkeypt. Hún hefur ekki aðeins kostað hann tiltrú og fylgi, heldur líka einangrað Sjálfstæðisflokkinn frá þjóðinni. Samhliða hefur varðgæslan fyrir sægreifana einangrað formanninn frá þingflokknum. Það þarf ekki mikla pólitíska næmni til að skynja að hún hefur enga trú á þeirri stjórnlist sem þröngvað er upp á hana og flokkinn af þeim Hildi Sverrisdóttur, Jóni Gunnarssyni og Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra sægreifasamtakanna.

Um leið eru málflutningur og skrípalæti þingmanna Sjálfstæðisflokksins á Alþingi á góðri leið með að eyðileggja vígstöðu hans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar næsta ár. Flokkur sem í heilan vetur og þúsund ræðum gerir ekkert nema verja þrönga sérhagsmuni stórútgerðarinnar missir traust jafnt og þétt.

Það sjáum við nú í hverri könnun á fætur annarri. Þetta getur orðið Sjálfstæðisflokknum mjög dýrkeypt í sveitarstjórnarkosningum, einkum á höfuðborgarsvæðinu.

Konan í kasmírkápunni sem rantar í fokdýrum auglýsingum sægreifasamtakanna er vissulega ágætur málsvari sérhagsmuna stórútgerðarinnar. Þeim samtökum sundraði Heiðrún Lind reyndar með offorsi sínu í veiðigjaldsmálinu, einsog lesa mátti úr gúddbæ bréfi Guðmundar í Brimi á dögunum. Hún hrakti formanninn burt, sem í upphafi máls vildi aðra nálgun en hún, og lýsti því opinberlega. Enn er varla fyrirséð hvernig það á eftir að leika samtökin.

Hitt er degi ljósara, að ætli Sjálfstæðisflokkurinn áfram að sækja kasmírlínuna hráa inn á skrifstofur sægreifasamtakanna er líklegt að sprungan, sem hún hefur þegar skapað milli flokks og fylgis, breytist í óyfirstíganlega gjá.

Svona fer þegar flokkar verða einsog hundur í bandi sérhagsmuna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: