- Advertisement -

Landspítalinn í vanda og er enn ætlað að spara

Umræðan/Facebook: Halla Gunnarsdóttir formaður VR skrifaði:

„Sláandi fréttir af Landspítala. Á sama tíma og ekki er hægt að vernda fólk fyrir berklasmitum inni á bráðamóttöku er gerð niðurskurðarkrafa á spítalann. Allar greiningar á fjármálum spítalans, hvort sem það er McKinsey eða Ríkisendurskoðun, hafa sýnt að hann er vanfjármagnaður. Innleidd var sérstök þjónustutengd fjármögnun til að borga spítalanum fyrir unnin verk. Svo fékk hann samt ekki greidd fyrir verkin eftir að þau voru unnin.

Fjárveitingavaldið hlýtur að þurfa að taka á þessu. Annars munum við öll líða fyrir það.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: