- Advertisement -

„Leyfum þeim að dæma sig til úreldingar“

„Ólíkt mörgum þá finnst mér frábært að íhaldið komi fram við löggjafann líkt og þeir eigi þetta bara. Ég vona að þau haldi áfram í allt sumar svo kjósendur sjái aftur og aftur og aftur að þetta fólk strendur ekki fyrir neitt nema bómull fyrir eigendur sína og strit fyrir okkur hin. Svona hafa sjálfstæðismenn alltaf hagað sér en nú er valdamesta embætti sem flokkunum hefur verið treyst fyrir bæjarstjóri Kópavogs. Það má endilega láta þau afhjúpa sig til ágústloka,“ skrifar Atli Þór Fanndal.

„Þau geta þá gefist upp eða 71. grein má nota nokkrum dögum fyrir næsta þing og samþykkja bara það sem kallað hefur verið eftir árum saman. Fínt að fólk fái að sjá að þessir flokkar standa ekki fyrir neitt nema gremju og milljarðamæringadekur. Þau voru svona eftir hrun og voru svona fyrir hrun og alveg eins á Davíðstímanum og munu alltaf vera svona. Látum þau garga sig hás og notum svo bara þingsköpin og verjum rétt þingsins til lagasetningar. Það þarf enginn að efast um nauðsyn þess að nota neyðarákvæði eftir margra mánaða málþóf. Endilega leyfum þeim að dæma sig til úreldingar. Þótt fyrr hefði verið.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: