- Advertisement -

Minningarorð um Sturlu Böðvarsson

Alþingi: Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, minntist Sturlu Böðvarssonar, við upphaf þingfundar í dag.

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis, lést á líknardeild Landspítala á laugardaginn var, 10. janúar, áttræður að aldri.

Sturla var fæddur í Ólafsvík 23. nóvember 1945, sonur hjónanna Böðvars Bjarnasonar byggingameistara og Elínborgar Ágústsdóttur, húsmóður og leikskólastarfsmanns. Hann ólst upp í Ólafsvík en hleypti ungur heimdraganum til að stunda iðnnám í Reykjavík. Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði tvítugur og varð byggingatæknifræðingur frá Tækniskóla Íslands árið 1973.

Á unga aldri starfaði Sturla að iðn sinni heima í Ólafsvík og að loknu námi á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens en hugur hans hneigðist fljótt að félags- og stjórnmálum. Árið 1974, aðeins 28 ára, varð hann sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í Stykkishólmi. Því starfi sinnti Sturla, við vaxandi gengi, í 17 ár fram til ársins 1991 er hann var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vesturlandskjördæmi. Hann þekkti þá þegar vel til hér á Alþingi því að frá árinu 1984 hafði hann oft tekið sæti sem varaþingmaður. Full tvö kjörtímabil var Sturla varaformaður fjárlaganefndar og jafnframt einn af varaforsetum þingsins, en vorið 1999 varð hann samgönguráðherra og því embætti gegndi hann samfleytt í átta ár til vorsins 2007. Eftir kosningar það ár varð hann forseti Alþingis og sat í því embætti fram í febrúar árið 2009. Það varð hlutskipti Sturlu að stýra fundum Alþingis á tímum efnahagsáfallanna 2008–2009 þegar mikil mótmæli urðu hvað eftir annað við Alþingishúsið og það gerði hann af festu og öryggi. Á stuttum forsetaferli beitti hann sér fyrir margvíslegum endurbótum á starfsháttum Alþingis sem víðtæk samstaða var um. Sturla leitaði ekki endurkjörs í kosningum í apríl árið 2009. Hann átti sæti á alls 28 löggjafarþingum.

Frá Stykkishólmi.
Sturla Böðvarsson var lengi bæjarsstjóri í Stykkisholmi.

Sturla settist ekki í helgan stein að þingferli loknum heldur tók að sér ýmis verkefni og varð á ný bæjarstjóri í Stykkishólmi árin 2014–2018. Þar fann hann atorkusemi sinni verðugan farveg.

Sturla Böðvarsson var sem bæjarstjóri, alþingismaður og samgönguráðherra á heimavelli þegar beita þurfti verklegum lausnum í viðfangsefnum samfélagsins. Hann kunni góð skil á vegagerð, húsbyggingum og hafnargerð og ánægður var framkvæmdamaðurinn þegar vel sóttist í þeim efnum. Sturla var áhugamaður um minjavernd og lét til sín taka á þeim vettvangi í heimabæ sínum, Stykkishólmi, í Húsafriðunarnefnd ríkisins og sem formaður þjóðminjaráðs.

Afstaða Sturlu til verndar byggingararfinum kom einnig fram í því að í forsetatíð hans var tekin endanleg ákvörðun um að eldri hús við Kirkjustræti myndu ekki víkja fyrir nýbyggingu undir starfsemi Alþingis eins og áformað var um skeið.

Hin brýnu úrlausnarefni íslensks almennings voru jafnan helstu viðfangsefni Sturlu Böðvarssonar á löngum starfsferli hans í þágu nærsamfélags síns og á vettvangi landsmála. En hann skyggndist líka víðar um og árum saman tók hann þátt í norrænu samstarfi á vegum Alþingis. Einnig var hann vel lesinn og fróður og kunni skil á mörgu öðru en því sem féll beinlínis undir starfssvið hans.

Sturla var tónelskur maður og lék í hljómsveitum á yngri árum. Í tíð hans sem forseta Alþingis voru gerðar nokkrar breytingar á þingsetningarathöfninni og var þá m.a. tekinn upp sá góði siður, sem hefur haldist síðan, að flytja íslenska tónlist hér í þingsalnum þegar nýtt löggjafarþing er sett.

Hvarvetna þar sem hann lét til sín taka naut Sturla Böðvarsson trausts og álits fyrir vinnusemi sína, háttvísi og umhyggju fyrir samstarfsfólki.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: