- Advertisement -

„Líkt og stjórnarandstaðan hafi nær öll gengið í Miðflokkinn“

Kratinn, vefrit Samfylkingarinnar:

Á þriðjudagsmorgun varð ljóst að Evrópusambandið myndi ekki halda fullu tollfrelsi fyrir kísiljárnframleiðslu Íslendinga og Norðmanna inn á evrópska markaði.

Núna þegar rykið er farið að setjast virðast afleiðingar þessa ekki ætla að verða afdrifaríkar fyrir þá framleiðslu sem fer fram á Íslandi, hjá Elkem á Grundartanga. Raunar hafa hlutabréf í Elkem, sem er líka með verksmiðjur í Noregi, hækkað í vikunni, enda er allt eins mögulegt að áhrif aðgerða ESB verði þau að verðið sem fæst fyrir kísiljárn framleitt á Íslandi inn á Evrópumarkað hækki. 

Hins vegar, eins og fram hefur komið í máli okkar stjórnmálafólks og fulltrúa hinna stjórnarflokkanna, er prinsippið sem felst í þessari ákvörðun Evrópusambandsins ekki gott. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Um leið er þetta þó ekki í fyrsta skipti sem Evrópusambandið setur tolla á framleiðslu EES-ríkja. Sambandið greip til svipaðra aðgerða á stálmarkaði árið 2002 og hefur raunar gert það tvisvar til viðbótar síðan, eins og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks rifjaði upp í grein á Vísi sem birtist á miðvikudagsmorgun. Við hins vegar framleiðum ekki stál og urðum þess lítt vör. 

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafa leitt öfluga hagsmunagæslu fyrir Ísland í þessu máli og því verður haldið áfram. Kristrún ræddi símleiðis við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB á fimmtudagsmorgun. Samkvæmt Kristrúnu staðfesti Von der Leyen í því samtali að aðgerðirnar væru sértækt tilvik og ekki fordæmisgefandi fyrir aðrar ákvarðanir. 

„Hún sagði líka skýrt að þessi ákvörðun snerist ekki um EES-samninginn, og að Ísland gæti áfram reitt sig á aðgengi að innri markaði ESB og því fjárfestingaumhverfi sem samningnum fylgir. Þrátt fyrir þetta hliðarspor þá stendur EES-samningurinn sterkur. Það er mikilvægt að fá það staðfest með þessum hætti,“ sagði Kristrún í færslu á Facebook á fimmtudag.

Stjórnarandstaðan hefur hins vegar hlaupið upp til handa og fóta og reynt að þyrla upp ryki um öll samskipti Íslands við Evrópusambandið út af þessu máli. Því hefur heyrst fleygt að það sé hreinlega líkt og stjórnarandstaðan hafi nær öll gengið í Miðflokkinn í þessu máli, með tali um að frysta ætti öll EES-mál vegna framgöngu Evrópusambandsins í kísiljárnmálinu, eða með tillögum um aukna tolla á tolla á innfluttar landbúnaðarvörur frá Evrópu. 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: