- Advertisement -

Miðflokkurinn og múltímillarnir

Umræðan/Facebook: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifaði:

„Það eru ýmsar mjög góðar ástæður fyrir því að það er bannað með lögum fyrir stjórnmálaflokka að þiggja fjármagn erlendis frá.

Ein er sú að það eru múltímillar eins og Koch og fleiri öfga hægri öfl frá Bandaríkjunum, stjórnvöld í Rússlandi og aristókratar fra Evrópu sem hafa fjármagnað andréttindahreyfingar um alla Evrópu.

Þetta eru hreyfingar sem ég hef titlað “the uncivil society” upp á ensku þar sem þeirra helsta markmið er að grafa undan réttindum sem hafa áunnist um alla Evrópu. Við erum að tala um rétt kvenna til þungunarrofs, rétt samkynhneigðra til að gifta sig og fleiri mikilvæg mannréttindi kvenna, hinsegin og kynsegin fólks sem moldríkum elítum þessa lands finnst ekki mega þrífast.

Það er full ástæða fyrir Ríkislögreglustjóra og Ríkisendurskoðanda að kafa ofan í kjölin á því hvort Miðflokkurinn eða Sjálfstæðisflokkurinn þiggi fé frá öfgafólki að utan. Þannig stæðum við vörð um íslensk gildi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: