- Advertisement -

Mikilvægt að nýta upplýsingar sjómanna á veiðislóð

Sömuleiðis er sjálfgefið að líta til vaxtar þorsksins en ef vöxtur er hægur eins og nú er, þá ætti það að gefa til kynna að bæta megi í veiðar á þorski.

Sigurjón Þórðarson.

Stjórnmál/Facebook: Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Í vikunni fór ég yfir endurmatið á makrílstofninum með nokkrum fiskifræðingum, sem leiddi til þess að stofninn er nú metinn allt að 420% stærri en áður var talið.

Öll gögnin um makrílinn bentu í eina átt þ.e. að miðað við endurmatið þá er borðleggjandi að veiðin hafi verið langt undir aflareglu í makríl. Í öðru lagi má draga þá ályktun að makrílstofninn hafi farið í niðursveiflu frá árinu 2015 þrátt fyrir vanveiðina.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það sem kom mér verulega á óvart var að starfandi reiknisfiskifræðingum þótti þessar ályktanir mínar og reyndar Jens Christian Holst fiskifræðings einnig ekki vera sjálfgefnar og drógu þær jafnvel verulega í efa. Það var engu líkara á köflum í umræðunni en að reiknislíkönin hefðu öðlast sjálfstætt líf og lytu ekki lengur líffræðilegum lögmálum.

Mér finnst tímabært að koma ráðgjöfinni í meira inn í raunheima og horfa til upplýsinga sem Ari Már Arason ofl. sjómenn afla sem Svanur Guðmundsson safnar skipulega saman. Sömuleiðis er sjálfgefið að líta til vaxtar þorsksins en ef vöxtur er hægur eins og nú er, þá ætti það að gefa til kynna að bæta megi í veiðar á þorski.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: