MORÐIN á SJÖUNDÁ: FÍ-dagsferð
Tómas Guðbjartsson læknir skrifar:
„Mig langar að benda á öðruvísi dagsferð á vegum FÍ þann 4. ágúst næstkomandi, þ.e. þriðjud. e. verslunarmannahelgi. Þar munum við Gísli Már Gíslason prof. emeritus fara yfir anatómíu Rauðasands og Sjöundár og staldra sérstaklega við sakamálin á Sjöundá, en þar voru einhver frægustu morð Íslandssögunnar framin 1802.
Fjallar saga Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl, um þessi morð. Okkur til fulltingis verða hæstaréttardómararnir Björg Thorarensen og Benedikt Bogason sem fjalla um réttarhöldin út frá lögfræðilegu sjónarmiði – en á mannamáli. Eftir það er boðið upp á tvær göngur; a) út í Skor og hins vegar mun ég leiða göngu b) upp og niður Stálfjallið að surtarbrandsnámunum frægu. Ef þið eruð á ferðinni um Vestfirði um næstu helgi er tilvalið að kíkja við á Rauðasand. Nánari upplýsingar má sjá í eftirfarandi hlek: