- Advertisement -

Jafntefli Grænhöfðaeyja við Spán óvæntustu úrslitin til þessa

HM: Gunnar Smári skrifaði:

Af óvæntum úrslitum í fyrstu umferð HM, sem líka mætti kalla afrek veikari þjóða, er jafntefli Grænhöfðaeyja við Spán líklega mesta afrekið. Grænhöfðaeyjar eru nr. 67 á heimslistanum (Ísland er nr. 74) en Spánn nr. 2. Og ef marka má Transfermarkt eru liðsmenn spænska liðsins metnir 22 sinnum verðmætari en liðsmenn Grænhöfðaeyja.

Jafntefli Kongó gegn Portúgal er líka góður árangur. Kongó er nr. 46 á lista FIFA og Portúgal nr. 5. Leikmenn Portúgal eru sjö sinnum verðmætari samkvæmt Transfermarkt.

Jafntefli Sádi Arabíu gegn Úrúgvæ er sambærilegt afrek. Sádar eru nr. 61 á heimslistanum en Úrúgvæ nr. 16. Lið Úrúgvæ er metið níu sinnum verðmætara en lið Sáda.

Miðað við heimslistann er það afrek hjá Nýja Sjálandi (nr. 85) að ná jafntefli við Íran (nr. 20) en lið Nýja Sjálands er þó metið ívið verðmætara en lið Íran.

En þetta eru allt jafntefli. Blessunarlega er það ekki svo að sterkara liðið sigri alltaf í fótbolta. Það gerir það kannski 2/3 hluta leikjanna en missir svo hina leikina niður í jafntefli, tapar svo óvænt einhverjum þeirra. Það er þannig ekkert skrítið við að Marokkó nái jafntefli á móti Brasilíu, Japan á móti Hollandi, Egyptaland á móti Belgíu eða Katar á móti Sviss.

Og það er ekki enn komin óvænt úrslit þar sem litla liðið sigrar hið stóra.

Stærsta afrekið hjá sumum þjóðanna er að komast á HM. Að ná í stig er bónus. Ísland komst á HM 2018 og náði jafntefli við Argentínu í fyrsta leik, sem þá var kannski svipað afrek og Grænhöfðaeyjar náðu nú gegn Spáni. Íslendingar náðu að skora, öfugt við Grænhöfðaeyjar.

Það eru þrjú lið á HM 2026 sem eru neðar en Ísland (nr. 75) á heimslistanum: Curaçao (nr. 82), Haiti (nr. 83) og Nýja Sjáland (nr. 85). Öll þessi lið komast inn vegna svæðaskiptingar forkeppni. Nýja Sjáland tilheyrir Eyjaálfu sem fær eitt lið á HM en ekkert lið þar er ofar en Ísland á lista FIFA. Og Curaçao og Haiti koma inn sem Norður- og Mið-Ameríkuríki og njóta þess að Kanada, Bandaríkin og Mexíkó fara öll inn sem gestgjafaþjóðir.

Veikustu liðin sem eru á mótinu fyrir utan þessi eru Ghana (73) og Grænhöfðaeyjar (67) frá Afríku, Jórdanir (63) og Sádar (61) frá Asíu, Bosnía (64) og Skotland (42) frá Evrópu og Paragvæ (41) og Ecuador (23) frá Suður-Ameríku. Þetta eru tvö lið frá hverri álfu, ekki botninn. Þarna sést að veiku liðin frá Suður-Ameríku eru miklu sterkari en veiku liðin sem komast inn annars staðar frá.

Eins og áður sagði er Ísland nr. 73 á lista FIFA. Þrjú lið sem eru neðar á listanum komust á HM og þar af leiðandi 45 sem eru ofar. Og þá eru það 27 lið sem eru ofar en Ísland á listanum sem komust ekki inn. Þar á meðal Ítalía (nr. 12), Danmörk (nr. 21), Nígería (nr. 26), Úkraína (nr. 32), Rússland (nr. 35), Pólland (nr. 36), Wales (nr. 37), Ungverjaland (nr. 39) o.s.frv. Þarna eru sjö Evrópulönd og það eru önnur átta lönd frá Evrópu sem eru ofar á listanum en Ísland en komust ekki á HM, alls fimmtán Evrópulönd sem samkvæmt FIFA eru betri en við en komust samt ekki á HM.

Sem bendir til að besta leiðin fyrir Ísland á HM 2026 hafi verið að ganga úr Evrópu og inn í Norður- og Mið-Ameríku-deild FIFA.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: