Veisla: Það kemur ýmislegt í ljós við lestur boðsgesta í „áramótasamkvæmi“ Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. Þar er að finna fjölda fyrrverandi og núverandi ráðherra. Þorsteinn Pálsson fékk ekki boðsbréf og ekki heldur Össur og ekki Svandís Svavarsdóttir. Eflaust fleiri. En þau þrjú, Þorsteinn, Össur og Svandís hafa verið ráðherrar í mörg ár. Mun lengur en margt þeirra sem er boðið.
Heiðurslistamönnum ríkisins er sumum boðið, öðrum ekki. Kristbjörgu Kjeld er ekki boðið og ekki Bubba Morthens. Tolla Morthens, bróður Bubba, er hins vegar boðið.
Mörgum skólastjórum framhaldsskóla er boðið. Ársæll Guðmundsson í Borgarholtsskóla er ekki þeirra á meðal.
Eyþóri Arnalds er boðið, þar sem hann er ræðismaður Botsvana og eins er Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamanni boðið. Ekki vegna þess að hún er fréttamaður. Nei, vegna þess að hún er ræðismaður Sviss. Jón Kristinn Snæhólm fékk boðskort, hann er ræðismaður Seychelleseyja. Meira síðar.