- Advertisement -

Ási hættir við að hætta í stjórn SÁÁ

Ásmundur Friðriksson skrifaði:

SÁÁ og tilfinningarnar

Það er búið að ganga mikið á í starfi SÁÁ. Starfsfólk og stjórn hafa tekist á og við gerst nokkuð móð á þeirri leið. Sjálfur hef ég ekki átt í persónulegum útistöðum við neinn, en fannst sem hugmyndir mínar nytu ekki stuðnings og í tilfinningahita dagsins ákvað ég að segja af mér stjórnarstarfi.

Um leið og það var opinbert hafði stjórnarformaður samband við mig þar sem hún og fólkið vildi halda mér áfram þrátt fyrir skiptar skoðanir okkar. Þá þótti mér vænt um að fulltrúi starfsmanns hafði samband og sendi mér hlý skilaboð og hvatningu til að halda áfram.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þegar hjarta og hönd fara saman við hugsjónir SÁÁ mun ekki standa á mér og læt ég mér í léttu rúmi liggja að hafa í tilfinningahita sagt af mér. Sú afsögn hafði ekki verið tekin fyrir og hefur því verið afturkölluð.

Hjarta mitt og hönd mun því leggja sig fram um að skapa svigrúm til friðar og við öll ganga saman, hlið við hlið fyrir framtíð SÁÁ og skjólstæðinga þess. En þjónustan við veika alkóhólista og fjölskyldur þeirra er það sem öll okkar orka á að fara í.

Áfram SÁÁ!


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: