- Advertisement -

Svandís fetar í fótspor föðurs síns

Svandís Svavarsdóttir hefur nú tekið við ritstjórn tímaritsins Breiðfirðings. Faðir hennar, Svavar Gestsson heitinn, var ritstjóri þess í nokkur ár og alveg fram að því að hann lést.

Svavar var Dalamaður og í minningargrein sem vinur Svavars, Haukur Már Haraldsson, skrifaði til minningar um Svavar segir meðal annars:

„Sú ákvörðun var tekin af ritstjóra og ritnefnd Breiðfirðings í upphafi þessa starfs að í ritinu yrði fjallað um allar byggðir við Breiðafjörð; frá Hellissandi og Rifi í suðri til Tálknafjarðar í norðri. Það var gert. Listamenn og þjóðgarður á Hellissandi og nágrenni, æðarrækt á Rifi, staðbundið skólastarf og fjarkennsla í Grundarfirði og atvinnurekstur víða um fjörðinn. Heimsótt elliheimili í Búðardal og verslun á Reykhólum. Saga húsanna og fuglalíf í Flatey, mannlíf og tæknivætt seiðaeldi í Tálknafirði. Rætt um stjórnsýslu við bæjarstjóra og hafnarstjóra, svo eitthvað sé nefnt. Það átti að kynna mannlífið umhverfis fjörðinn.“

„Ást Svavars á Breiðafirði var án skilyrða. Nema að einu leyti. Hann vildi ekki fara sjóleiðina yfir fjörðinn; ekki sigla, ekki að ræða það. Eins og hann orðaði það við mig, glottandi: Ég myndi elska Breiðafjörðinn enn meira ef ekki væri allt þetta vatn í honum!

Þú gætir haft áhuga á þessum


Mikil og víðfeðm söguþekking og fróðleiksfýsn Svavars var áreiðanlega hluti þess drifkrafts sem dreif hann áfram í menningarmálum Dalabyggðar. Hann unni sveitinni sinni, Dölunum, og vildi veg hennar sem mestan. Gullni söguhringurinn, Vínlandssetur, uppbygging Staðarhóls í minningu Sturlu Þórðarsonar. Krafturinn óendanlegur. Og þau Guðrún reistu sér lítinn framtíðarstað þar sem heitir í Hólaseli á yndislegum stað þar sem vestursýnin yfir fjörðinn gerist vart fegurri.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: