Facebook: Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði:

„Virkilega ánægjulegt að sjá mikla aukningu á notkun Strætó. Ég hef núna í vetur tekið Strætó til vinnu enda liggur það einstaklega vel við að ferðast úr Grafarvogi niður á Alþingi með Strætó. Ferðin tekur um 30 mínútur og ég fæ smá hreyfingu við það að labba út á stoppistöð en það tekur rétt um 4 mínútur. Ég fer síðan oftast úr strætó áður en ég er kominn á leiðarenda til þess að fá fleiri mínútur í göngu.
Það að geta labbað út og vita að næsti strætó kemur innan skamms er frábært. Leið 6 gengur á 10 mínútna fresti á álagstímum. Þurfti að skipuleggja aðeins betur síðasta laugardag þegar vagnar eru á 30 mínútna fresti en alltaf tekur ferðin um 30 mínútur. Ég er um 20 mínútur að keyra þessa sömu leið en á milli 27 og 37 mínútna að hjóla til og frá vinnu (aðeins lengur heim en lengst verið 37 mínútur).
Þetta er góður ferðamáti sem ég hvet þau sem geta að nýta sér.“